LÍ leitar til landlæknis vegna læknaskorts á Landspítala

Læknafélag Íslands vekur athygli velferðarnefndar Alþingis á alvarlegum mönnunarvanda og álagi á lækna á Landspítala. LÍ hefur leitað til landlæknis um hver ábyrgð lækna er ef sú staða kemur upp að mönnun sé ófullnægjandi. Félagið spyr hver ábyrgð lækna sé við við slíkar aðstæður.

Reynir Arngrímsson, formaður félagsins, segir hljóðið afar þungt í læknum, ekki aðeins á bráðamóttöku Landspítalans, heldur einnig í heilsugæslunni eins og ályktun FÍH beri með sér. Þá séu ófrágengnir samningar við sérgreinalækna.

„Erfitt er að fara inn í sumarið undir þessum kringumstæðum. Mikilvægt er að fram komi skýrar áætlanir frá heilbrigðisyfirvöldum um hvernig leysa eigi yfirvofandi álagskrísu í sumar,“ segir Reynir.

Morgunblaðið sagði frá því í gær að Vil­hjálm­ur Ari Ara­son, 65 ára lækn­ir á bráðamót­töku Land­spít­al­ans, hafi sagt upp eft­ir 40 ára starf.

„Við erum að sigla inn í sum­arið í verri stöðu en nokk­ur sinni fyrr,“ segir Vilhjálmur seg­ir við Morgunblaðið. Neyðarástand ríki á deild­inni. Fjöldi lækna segi upp og álag auki lík­ur á mis­tök­um. Hann kveðji þó í mik­illi sátt og sam­lyndi.

„Síðastliðin ár hef­ur verið jöfn og þétt aukn­ing á komu sjúk­linga og á sama tíma hafa stöður sér­fræðilækn­ar verið und­ir­mannaðar. Það eru lækn­arn­ir sem bera ábyrgð á þess­ari dag­legu vinnu og ég sé það bara á eig­in skinni. Áður var maður með ung­lækna sem unnu grunn­vinn­una á meðan sér­fræðilækn­ar voru frek­ar ráðgef­andi og að kenna. Í dag er svo komið að sér­fræðing­ar þurfa að vinna grunn­vinn­una að miklu leyti sjálf­ir,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

Stjórn Læknaráðs lýsti í ályktun frá 18. maí yfir áhyggjum af mönnun sérfræðilækna á bráðamóttöku spítalans í sumar. Stjórn ráðsins hefur skorað á yfirstjórn spítalans að bregðast skjótt við og tryggja bæði öryggi sjúklinga og forða læknum frá því að lenda í alvarlegum atvikum í starfi vegna manneklu og skorts á yfirsýn.

Hjalti Már Björnsson yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, sagði í fréttum RÚV þann 26. maí að spítalinn ætti í vandræðum með að ná að halda lágmarksmönnun sérfræðilækna á bráðamóttökunni í sumar. Álagið hafi verið mikið og læknar kosið að hætta: „Og læknar eru hreinlega að gefast upp á því að starfa við heilbrigðiskerfi sem að er ekki nægilega vel mannað af læknum og legudeildarplássum til að sinna sjúklingum.“

  • Sjá ályktun LÍ hér
  • Sjá frétt Morgunblaðsins hér