Næsti fundur Öldungadeildar verður haldinn miðvikudaginn 8. janúar 2020 . Þá mun félagi okkar Ingimundur Gíslason augnlæknir flytja erindi sem hann nefnir „Ferð í þjóðgarð í Alaska“.
Fundurinn verður í sal Læknafélaganna á 4.hæð að Hlíðasmára 8, Kópavogi
Um fundi Öldungadeildar.
Allir læknar sem náð hafa sextugsaldri eru velkomnir í okkar hóp samkvæmt lögum Öldungadeildar Læknafélags Íslands. Vonumst við til að sjá sem flesta á fundum okkar, bæði verðandi félaga og skráða félaga í deildinni. Fundirnir eru haldnir kl. 16.00 fyrsta miðvikudag hvers mánaðar að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi. Hálftíma fyrir fund er boðið upp á kaffi og vínarbrauð meðan félagar og gestir ræða saman og rifja upp gömlu góðu dagana.