Stjórn LÍ skipar sjö lækna í Siðfræðiráð til tveggja ára í senn og tilnefnir einn þeirra sem formann. Fjórði kaflinn í lögum LÍ fjallar nánar um verkefni og störf ráðsins. Stjórn Siðfræðiráðs hefur ákveðið að umsagnir þess skuli birta á opinni heimasíðu félagsins.
Þann 21. ágúst 2025 voru eftirfarandi skipaðir í Siðfræðiráð félagsins til tveggja ára:
Ögmundur Bjarnason, formaður
Magdalena Ásgeirsdóttir
María Gottfreðsdóttir
Ólafur Árni Sveinsson
Tryggvi Baldursson