Stjórn Félags sjúkrahúslækna (FSL) boðar til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl. 16:30 á Hótel Holti, Bergstaðastræti 37, Reykjavík.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga félagsins:
Gert er ráð fyrir að aðalfundurinn standi í hálftíma eða svo. Á eftir er félagsmönnum boðið til vorfagnaðar sem gert er ráð fyrir að standi frá kl. 17-19. Þar verða bornar fram léttar veitingar.
Stjórnin hvetur félagsmenn til að mæta á fundinn og vorfagnaðinn á eftir.
Vegna stjórnarkjörs og kjörs fulltrúa FSL í stjórn LÍ:
Kjörtímabil varaformanns, ritara og meðstjórnanda rennur út á þessum aðalfundi.
Í 2. mgr. 12. gr. laga FSL segir:
Tillögur um kjör stjórnarmanna skal senda stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Stjórn gætir þess að ekki sé gerð tillaga um færri menn en kjósa á, en sérhver félagsmaður hefur tillögurétt. Þeir einir eru kjörgengir sem tillaga hefur verið gerð um með þessum hætti.
Tillögur til stjórnar um stjórnarmenn þurfa því að berast eigi síðar en kl. 16:30 miðvikudaginn 15. apríl nk. Þær óskast sendar á formann félagsins á netfangið hildurjo@landspitali.is og netfang félagsins fsl@lis.is.
Fylgigögn fyrir aðalfund, uppgjör gjaldkera vegna 2025.pptx
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13