felag-sjukrahuslaekna-rkw.jpg

Félag sjúkrahúslækna

Félag sjúkrahúslækna var stofnað 18. janúar 2018

Fréttir

Stjórn Félags sjúkrahúslækna (FSL) boðar til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl. 16:30 á Hótel Holti, Bergstaðastræti 37, Reykjavík. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga félagsins: a) Skýrsla stjórnar félagsins fyrir starfsárið 2025-2026. b) Reikningar félagsins fyrir árið 2025 með athugasemdum skoðunarmanna, ef einhverjar eru. c) Stjórnarkjör – Kjósa þarf varaformann, ritara og meðstjórnanda til tveggja ára þar sem kjörtímabil þeirra rennur út á aðalfundinum. Um framboð sjá hér fyrir neðan. d) Kosning annars tveggja fulltrúa FSL í stjórn LÍ. Jóhanna Guðrún Pálmadóttir gefur áfram kost á sér. e) Kosning helmings aðal- og varafulltrúa á komandi aðalfund LÍ. Heimilt er að tilnefna aðra fulltrúa á þessum fundi en fram koma í tillögu stjórnar. Séu fleiri tilnefndir en kjósa skal ræður afl atkvæða. f) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins varamanns. g) Ákvörðun árgjalds félagsmanna fyrir árið 2026 og fjárhagsáætlun. h) Lagabreytingatillögur ef einhverjar eru. i) Önnur mál.
08.04.2026

Fréttir

Stjórn Félags sjúkrahúslækna boðar til opins aðalfundar félagsins miðvikudaginn 30. apríl nk. kl. 17:00 í Hlíðasmára 8, Kópavogi. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga félagsins:
28.04.2025

Stjórn Félag sjúkrahúslækna

 

Formaður:
Hildur Jónsdóttir

Varaformaður:
Inga Jóna Ingimarsdóttir

Gjaldkeri: 
Valgerður Rúnarsdóttir

Ritari:
Óskar Örn Óskarsson

Meðstjórnandi: 
Ragnheiður Baldursdóttir

Fulltrúar FSL í stjórn LÍ: 
Hildur Jónsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir

Varamaður: María I. Gunnbjörnsdóttir