Þórólfur hafði rétt fyrir sér - Alma D. Möller í Morgunblaðinu

Staðfest hefur verið það sem Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir sagði í byrj­un far­ald­urs um smit meðal barna. Var það gert með því að keyra sam­an gögn frá Íslenskri erfðagrein­ingu og gögn frá rakn­ing­ar­t­eymi al­manna­varna. Þetta sagði Alma D. Möller land­lækn­ir á síðasta upp­lýs­inga­fundi al­manna­varna sem haldinn var í gær, mánudaginn 25. maí. Börn fái síður veiruna og smiti síður frá sér.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar segir einnig frá því að sóttvavarnalæknir segi einnig að þeir sem greinast smitaðir af kórónuveirunni séu sífellt minna veikir. Það kunni að stafa af því að þeir séu búnir með sín veikindi. 

„Það gæti líka verið að þróttur sé að fara úr veirunni, hugsanlega. Veikindin hafa verið að minnka eftir því sem liðið hefur á tímann frá 28. febrúar. Það gæti gefið okkur vísbendingar um að veiran sé ekki eins ágeng og slæm en tíminn verður að leiða það í ljós,“ er haft eftir Þórólfi Guðnason sóttvarnalækni í Morgunblaðinu eftir upplýsingafund almannavarna í gær. 

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi niður á hættustig vegna kórónuveirunnar sem veldur COVID-19. Neyðarstigi var lýst yfir 6. mars. 

Sjá úrdrátt úr frétt Morgunblaðsins á mbl.is hér.

Mynd/Skjáskot