Þingmaður spyr á Alþingi um myglu á Landspítala - Mbl.is

Grunur leikur á að mygla á Kvennadeild Landspítala hafi valdið veikindum starfsfólks og jafnvel sjúklinga. Þetta segir í Morgunblaðinu í dag.

„Ég er að reyna að mæta í vinnuna þótt það sé stundum erfitt. Ég geri ekkert skemmtilegra en að vinna og langar að geta unnið þarna áfram. Það verður erfitt ef heilsan fer. Ég er kvíðin,“ segir kona sem starfar á fósturgreiningardeild kvennadeildar Landspítalans í Morgunblaðsfréttinni.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram á Alþingi skriflega fyrirspurn um myglu í húsnæði Landspítalans, hvar hennar hafi orðið vart, hversu margir veikindadagar séu vegna þess og hvað hafi verið gert til að uppræta mygluna.

Mynd/Skjáskot/Morgunblaðið

 

Frétt Morgunblaðsins á mbl.is hér.