Sóltún vill reka hjúkrunarheimili á Oddsson-hóteli

Sóltún Öldrunarþjónusta hefur boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka Oddsson hótel sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða. Þetta kemur fram á heimasíðu þjónustunnar. 

Þar er sagt að félagið myndi taka á móti einstaklingum sem hægt er að útskrifa af Landspítalanum en komast ekki þaðan vegna skorts á úrræðum. 

„Með því myndi léttast verulega það álag sem nú er á Landspítalanum, en Oddsson gæti tekið við allt að 77 einstaklingum í einstaklingsherbergi. Sóltún Öldrunarþjónusta svarar þannig nýlegu ákalli heilbrigðisráðuneytisins, sem sendi fyrir skömmu erindi á hjúkrunarheimili og óskaði eftir að þau leituðu leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum,“ segir Anna Birna Jensdóttir, stjórnarformaður Sóltúns öldrunarþjónustu, í frétt félagsins. 

 „Félagið býðst til að reka aðstöðuna í Oddsson á meðan samfélagið vinnur úr því erfiða ástandi sem skapast hefur vegna COVID-19. Fyrstu rýmin gætu verið tilbúin í nóvember,“ ritar Anna Birna.

Oddsson hótel er í nýuppgerðu húsnæði við Grensásveg og segir félagið að ekki þurfi að ráðast í miklar breytingar á sameiginlegu rými eða herbergisaðstöðu til að hægt sé að reka þar þjónustu fyrir aldraða. 

 „COVID-19 hefur gert það að verkum að lítil eftirspurn er eftir hótelrýmum sem stendur og því hefur myndast þetta tækifæri til að nýta hótelið til að leysa bráðavanda Landspítalans.“

Mynd/Skjáskot/Oddsson

Sjá hér.