Nýju reglurnar gildi í marga mánuði - Þórólfur á RÚV

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í Kastljósi RÚV í kvöld að nýjar reglur sem taka gildi á landamærunum á morgun þurfi að gilda í marga mánuði.

„Já, ég held það nú, ef við viljum halda veirunni frá landinu, þá held ég að við þurfum að gera það í marga mánuði. Ég held að staðan sé bara þannig,“ sagði hann.

Samkvæmt nýju reglunum þurfa allir farþegar að fara í skimun við komuna til landsins. Einnig að lokinni fimm daga sóttkví.

Mynd/Skjáskot/RÚV