Stjórnvöld hugi vel að starfsfólki heilsugæslunnar

Stjórn Félags íslenskra heimilislækna skorar á heilbrigðisyfirvöld að huga vel að starfsfólki heilsugæslunnar. „Tryggja að fjárveitingar til reksturs heilsugæslunnar séu tryggðar hvort sem þær eru sjálfstætt reknar eða opinberar. Jafnframt biðjum við almenning að sýna starfsfólki heilsugæslunnar þolinmæði og skilning,“ segir í ályktun hennar. Ástaðan sé að úrlausnarverkefnum heilsugæslanna hafi fjölgað með þeim afleiðingum að sum þeirra hafi frestast og seinkað.

Svona hljóðar ályktunin í heild sinni:

Stjórn Félags Íslenskra Heimilislækna lýsir áhyggjum sínum af stöðunni í heilsugæslunni. Í rúmt ár höfum við glímt við nýjan vágest til viðbótar við fyrri störf. Áræðni og mikinn sveigjaleika hefur þurft í þjónustu okkar vegna Covid undanfarið ár. Undanfarna mánuði hefur síðan vinna kringum bólusetningar bæst við. Áhyggjur margra einstaklinga verið töluverðar, fyrirspurnir varðandi Covid og bólusetningar hellst yfir starfsfólk heilsugæslanna. Jafnframt leita skjólstæðingar til okkar með sín uppsöfnuðu vandamál. Með samvinnu og hugmyndaauðgi hefur þjónusta heilsugæslustöðva verið aðlöguð að þessu mikla álagi, en þessi nýju verkefni þýða að önnur úrlausnarefni frestast og seinkar. Vaktþjónustur eru mjög setnar og mikið álag á Læknavaktinni, þar sem verr hefur gengið að manna en áður. Töluverðrar uppsafnaðrar þreytu gætir því í okkar hópi og samstarfsfólks.

Stjórn FÍH skorar því á heilbrigðisyfirvöld að huga vel að starfsfólki heilsugæslunnar. Tryggja að fjárveitingar til reksturs heilsugæslunnar séu tryggðar hvort sem þær eru sjálfstætt reknar eða opinberar. Jafnframt biðjum við almenning að sýna starfsfólki heilsugæslunnar þolinmæði og skilning.

Fyrir hönd stjórnar Félags Íslenskra Heimilislækna,

Salóme Ásta Arnardóttir formaður

Oddur Steinarsson varaformaður