Reynir Arngrímsson sjálfkjörinn formaður LÍ


Kl. 15 í dag lauk síðari framboðsfresti til formanns stjórnar LÍ sem tekur við á aðalfundi LÍ 2019. Í fyrri framboðsfresti barst framboð frá sitjandi formanni, Reyni Arngrímssyni. Engin fleiri framboð bárust í síðari framboðsfresti.

Reynir Arngrímsson er því sjálfkjörinn formaður stjórnar LÍ frá aðalfundi 2019 til tveggja ára.