Ráðherra læsir úti læknana og kastar krónunni

 Því hefur verið haldið fram að rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands við sjálfstætt starfandi sérfræðinga sé ríkinu kostnaðarsamur og það langt umfram það sem gert hefur verið ráð fyrir í fjárlögum. Í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar er komist að þeirri niðurstöðu að kostnaðaraukning frá því árið 2012 hafi verið 60% á fimm ára tímabili og ýmsir hafa gripið þá tölu á lofti. Þegar grannt er skoðað væri hins vegar miklu nær lagi að tala um þessa aukningu sem 10% eða u.þ.b. 2% á ári. Á þessum tveimur tölum er mikill munur og hann skekkir verulega mikilvæga umræðu sem nauðsynlegt er að halda á vitrænum nótum.

Þessi 60% tala sjálfs ríkisendurskoðanda er einfaldlega röng og leiðrétting með eftirgreindum hætti blasir við: Þegar tekið er tillit til verðlagsþróunar lækkar talan í 47%. 


Ríkisendurskoðandi viðurkennir þessi mistök og jafnframt að viðmiðunarárin 2011-2012 væru ekki marktæk því þá var enginn samningur við sérfræðilækna og stærri hluti gjaldsins kom beint frá sjúklingunum. 
Því var ekki reiknað með í skýrslunni en þegar það er leiðrétt fer talan niður um 20 prósentustig til viðbótar og 60% aukningin um leið niður í 27%, eða 5,4 % á ári í fimm ár.

Fólksfjölgun var um 1,5% á ári og þegar öldrun þjóðarinnar er bætt við má reikna með 2% aukinni þjónustuþörf á ári. Þá stendur eftir rúmlega 2% hækkun á ári eða samtals 10% á fyrrnefndu fimm ára tímabili. 

Sjá grein á frettabladid.is