Læknaráð vill skjaldborg um Landspítala

„Læknaráð Landspítala skorar á stjórnvöld að slá nú skjaldborg um starfsemi spítalans. Sýna í verki að þær gríðarlegu fórnir sem starfsfólk spítalans hefur fært í yfirstandandi faraldri séu metnar að verðleikum og að styrkum stoðum verði rennt undir spítalann og heilbrigðiskerfið allt til framtíðar.“ Þetta segir í ályktun Læknaráðs Landspítala frá því á laugardag.

„Nú verður því ekki lengur frestað að stórauka fjárframlög til heilbrigðiskerfisins.“ Læknaráð segir fjölgun biðrýma innan vébanda spítalans ekki heppilegt skref á þeirri vegferð að bregðast strax við útskriftavanda spítalans.

Læknaráð segir að lokum: „Við skorum einnig á stjórnvöld að tryggja að viðbrögð við faraldrinum verði áfram byggð á tryggri leiðsögn sóttvarnalæknis og á vísindalegum grunni.“

Mynd/Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknaráðs.

 

Ályktun stjórnar Læknaráðs Landspítala vegna alvarlegrar stöðu spítalans í fimmtu bylgju hljóðar svo í heild:

 


COVID-19 faraldursins
Reykjavík, 7. ágúst 2021
Frú Svandís Svavarsdóttir
Heilbrigðisráðherra


Árum saman og ítrekað hefur heilbrigðisstarfsfólk bent á þá þröngu stöðu sem Landspítalinn
er í. Bent hefur verið á að ýmsar einingar spítalans starfi undir öryggismörkum, að
rúmanýting sé allt of há, gjörgæslupláss of fá, að ekki sé borð fyrir báru komi til alvarlegra
atvika í samfélaginu, hvað þá ef komi til heimsfaraldurs. Starfsfólk hefur verið beðið um að
hætta að tala spítalann niður, en fátt hefur verið um lausnir eða raunverulegar úrbætur.

Ástandið hefur eingöngu versnað og sumarið 2021 kom neyðarkall frá læknum
bráðamóttöku sem telja sig ekki geta tryggt öryggi sjúklinga við núverandi aðstæður. Fleiri
deildir upplifa einnig manneklu og mikil þreyta er meðal starfsmanna eftir langvarandi álag
undanfarinna missera. Þúsund læknar stigu fram í byrjun sumars með áskorun til
heilbrigðisyfirvalda um að grípa í taumana, en enn sem komið er ber lítið á viðbrögðum við
því ákalli. Læknaráð Landspítala skorar á stjórnvöld að slá nú skjaldborg um starfsemi
spítalans. Sýna í verki að þær gríðarlegu fórnir sem starfsfólk spítalans hefur fært í
yfirstandandi faraldri séu metnar að verðleikum og að styrkum stoðum verði rennt undir
spítalann og heilbrigðiskerfið allt til framtíðar. Nú verður því ekki lengur frestað að stórauka
fjárframlög til heilbrigðiskerfisins, enda eru þau hlutfallslega lægri hérlendis en í helstu
samanburðarlöndum, og reisa það við þannig að við þurfum ekki að upplifa trekk í trekk að
neyðarástand bresti á á spítalanum. Eins verður að bregðast strax við útskriftavanda
spítalans með varanlegum kerfisbreytingum. Fjölgun biðrýma innan vébanda spítalans er
ekki heppilegt skref á þeirri vegferð. Að lokum má ekki lengur treysta eingöngu á
áframhaldandi sjálfsfórnir og eljusemi útkeyrðs heilbrigðisstarfsfólks sem ekki getur hlaupið
frá skyldum sínum.


Við skorum einnig á stjórnvöld að tryggja að viðbrögð við faraldrinum verði áfram byggð á
tryggri leiðsögn sóttvarnalæknis og á vísindalegum grunni.


Virðingarfyllst,
F.h. stjórnar Læknaráðs
Steinunn Þórðardóttir, formaður
Afrit af ályktun þessari hefur verið sent til:
Forstjóra Landspítala
Framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala
Fjármálaráðherra
Velferðarnefnd alþingis
Landlæknis
Læknafélags Íslands
Félags sjúkrahúslækna
Fjölmiðla