Ljóð Hjálmars Freysteinssonar að koma út

Úrval ljóða og lausavísna eftir Hjálmar Freysteinsson verður gefið út í maí næstkomandi. Hann fæddist 18. maí 1943 og lést 6. febrúar 2020. Hjálmar starfaði sem heimilislæknir, lengst af á Akureyri.

„Hjálmar var landsþekktur fyrir snjallar vísur. Hann var allra manna fundvísastur á þær hliðar á málum sem vöktu kátínu, gat alltaf séð það spaugilega, aldrei rætinn eða klúr, bara skemmtilegur,“ segir Guðjón Ingi Eiríksson hjá Bókaútgáfunni Hólum en Bókaútgáfan gefur bókina út. Guðjón segir Ragnar Inga Aðalsteinsson og Höskuld Þráinsson munu búa hana til prentunar.

„Í bókinni, sem áætlað er að verði um 200 blaðsíður, verður Tabula Memorialis og þar verða nöfn þeirra sem vilja votta lækninum og hagyrðingnum, Hjálmari Freysteinssyni, virðingu sína, skráð (nema viðkomandi kjósi ekki nafnbirtingu), en forkaupsverð hennar verður kr. 6.980- (innifalið er bæði sendingargjald og virðisaukaskattur),“ segir hann.

Hann biður áhugasama kaupendur að senda nafn sitt, heimilisfang og kennitölu á netfangið holar@holabok.is (eða hringja í síma 692-8508 eftir klukkan 16 á daginn) og verða þá greiðslupplýsingar sendar til baka.

„Það verður enginn svikinn af þessari bók, svo mikið er víst.“