985 undirskriftir til heilbrigðisráðherra

Mælirinn hjá öllum er fullur, sagði Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir við fjölmiðla rétt áður en læknar afhentu fulltrúum heilbrigðisráðherra undirskriftalista 985 lækna sem vísa allri ábyrgð á stöðu heilbrigðismála á stjórnvöld. Þeir krefjast þess að stjórnmálamenn og embættismenn á Íslandi axli loksins þá ábyrgð sem þeim ber.

Theódór Skúli Sigurðsson, Steinunn Þórðardóttir, Berglind Bergmann og Jón Magnús Kristjánsson afhentu þeim Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra, og Birgi Jakobssyni, fyrrum landlækni og nú aðstoðarmanni ráðherra, undirskriftirnar við anddyri heilbrigðisráðuneytisins. Spurð hvers vegna ráðherrann hefði ekki komið sjálf svaraði Ásta: Hún er upptekin í öðru. Birgir boðaði þau fjögur svo á fund í kjölfar afhendingarinnar.

Læknarnir fjórir fögnuðu samstöðu lækna og sögðu hana sjaldan eða aldrei hafa verið meiri en nú. Enn séu undirskriftir að berast. Nú eru þær yfir 1000. Þær sýni hvað staðan sé erfið í íslensku heilbrigðiskerfi.

Eftir fund læknanna fjögurra með Birgi  sagði Theódór að farið hefði verið yfir áskorunina til stjórnvalda, embættismanna og stjórnmálamanna. „Við vonum að skilaboðin nái til ráðherra,“ sagði hann við fjölmiðla eftir fundinn með Birgi Jakobssyni. Setja þyrfti á ferli til að bæta stöðuna í heilbrigðiskerfinu; þá sérstaklega með fókus á öldrunarmál og Landspítala.

Öldrunarmál, vandamál Landspítala, öryggismál heilbrigðisstarfsfólks og heilsugæslan, sem og samskipti sérfræðinga og lækna sem starfi utan spítalans hafi verið meðal umræðuefna á fundinum. „Við bjóðumst til samstarfs til að leggja okkar lóð á vogaskálarnar við að leysa úr því sem á bjátar innan kerfisins. Við vonum að boð okkar verði þegið og að haft verði við okkur samráð.“

Berglind Bergmann, varaformaður Félags almennra lækna, segir spurð að fyrirfram hefði hún ekki búist við þessum miklu undirtektum lækna. „En nú þegar þetta hefur raungerst kemur þetta mér alls ekki á óvart.“ Læknar séu ósáttir við margt. „Við erum ítrekað að upplifa að við teljum okkur hafa góðar lausnir og geta komið að borðinu og hjálpað en það er eins og enginn hlusti á okkur,“ segir hún. Þá hafi margir miklar áhyggjur af ábyrgð sinni komi upp atvik í þjónustunni nú þegar undirmönnunin, eins og á bráðamóttökunni, sé svona mikil.

„Okkur finnst við ekki geta þjónað sjúklingum okkar með þeirri getu sem við búum yfir vegna ytri aðstæðna. Við erum hugsi yfir réttarstöðu okkar og hver beri ábyrgðina þegar ytri aðstæður gera þetta að verkum. Við erum ítrekað að benda á þetta en enginn hlustar,“ sagði hún eftir fundinn með aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra. Fara þurfi yfir málið með yfirvöldum, þar með talið landlækni, sem sé mjög vel að sér í málinu. „Ég hef fulla trú á að við getum leyst þessi mál en það þarf að fara í þau af alvöru og vinna þetta saman. Þetta er eitt af því sem við ræddum núna við Birgi og hann tók vel í það.“

Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsuvernd og fyrrum yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítala, segir að hann hafi ekki aðeins áhyggjur bráðamóttökunni heldur af stöðu Landspítala í heild. „Mitt hjarta tengist ennþá mest bráðamóttökunni. Ástandið þar er vont. Það er gríðarleg áhætta þegar starfsfólk er farið að segja upp og hætta. Það hefur gjarnan ruðningsáhrif og fleiri heltast úr lestinni,“ segir hann.

Theódór segist sáttur við fundinn með Birgi. „Ég vonast til að skrið komist á málin.“ Leysa þurfi vandann. „Ég vona að við hættum að setja plástra á sárin og við finnum varanlegar lausnir.“

 

Yfirlýsing lækna hljóðar svo:

Til stjórnmálamanna á Íslandi

Íslenskir læknar mótmæla langdregnu sinnuleysi stjórnvalda í garð heilbrigðiskerfisins.

Ítrekuð loforð um aðgerðir og úrbætur hafa verið svikin.

Ábyrgð stjórnmálamanna og embættismanna virðist lítil sem engin á Íslandi og heilbrigðisstarfsmenn endurtekið látnir bera alla ábyrgð á alvarlegum atvikum innan heilbrigðiskerfsins.

Heilbrigðisstarfsmenn hafa oft stigið fram og látið í ljós áhyggjur sínar yfir þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp í heilbrigðismálum.

Íslensk stjórnvöld hafa valið að hlusta ekki á raddir heilbrigðisstarfsfólks.

Íslenskir læknar vísa því allri ábyrgð á stöðu heilbrigðismála á stjórnvöld og krefjast þess að stjórnmálamenn og embættismenn á Íslandi fari loksins að axla þá ábyrgð sem þeim ber.

 

Theódór afhendir Ástu Valdimarsdóttur ráðuneytisstjóra undirskrifirnar. Mynd/gag

 

Theódór, Berglind og Jón Magnús Kristjánsson. Mynd/gag

 

Steinunn með undirskriftarlistann og Theódór hjá fyrir afhendinguna. Mynd/gag