Í gær var í þriðja sinn haldið upp á Dag lækna sem stjórn Læknafélags Íslands (LÍ) ákvað 2024 að yrði 17. maí ár hvert. Dagurinn var ekki valinn af handahófi heldur tengist hann náið sögu lækninga hérlendis. Fyrsti sérmenntaði læknir landsins, sem einnig varð fyrsti landlæknirinn, Bjarni Pálsson, fæddist þennan dag árið 1719.
Að þessu sinni var í tilefni Dags lækna haldið málþing í Þjóðminjasafninu þar sem lækningaminjastarfs Jóns Steffensen prófessors var minnst og sagt var frá Lækningaminjasjóði Jóns Steffensen sem LÍ stofnaði nýverið.
Þá voru á málþinginu afhentar viðurkenningar til lækna. Stjórn LÍ ákvað í byrjun þessa árs að stofna til viðurkenninga fyrir lækna og starfsemi þeirra, sem veittar yrðu árlega á Degi lækna. Á hverju ári verður kallað eftir tilnefningum bæði lækna og almennings á fyrirmyndarvinnustað eða starfsemi lækna, fyrirmyndarlækni, framúrskarandi nýsköpun og/eða gæðaastarfi lækna og ævistarfi læknis. Almenningur getur bæði tilnefnt fyrirmyndarvinnustað eða starfsemi lækna og fyrirmyndarlækni. Læknar sjálfir geta tilnefnt í alla flokkana.
Eftirtaldir aðilar hlutu viðurkenningar á Degi lækna 2026.
Fyrirmyndarvinnustaður eða starfsemi lækna 2026. Viðurkenningu sem fyrirmyndarstarfsemi lækna fékk starfsemi tveggja hópa lækna, Domus læknar og Hjartamiðstöðin.
F.h. Domus lækna tóku kvensjúkdómalæknarnir Ýr Frisbæk og Jóhannes Heimir Jónsson við viðurkenningunni. Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir tók við viðurkenningunni f.h. Hjartamiðstöðvarinnar.
Fyrirmyndarlæknir 2026. Viðurkenninguna fyrirmyndarlæknir 2026 fékk Valgerður Árný Rúnarsdóttir fíknlæknir.
Framúrskarandi nýsköpun og/eða gæðastarf 2026. Þessa viðurkenningu fékk nýsköpunarfyrirtækið Careflux ehf. Steindór Oddur Ellertsson læknir og forstjóri fyrirtækisins tók við viðurkenningunni f.h. Careflux ehf.
Ævistarf læknis 2026. Viðurkenningu fyrir ævistarf fékk Jón R. Kristinsson barnalæknir. Jón er að mati stjórnar Læknafélagsins verðugur viðtakandi fyrstu viðurkenningarinnar, sem veitt eru lækni fyrir ævistarf í tilefni af Degi lækna. Í Jóni sameinast allir þeir kostir sem prýða góðan lækni: Fagmennska, frumkvæði og kennslugleði, auk þess að hafa ávallt haft hag sjúklinganna að leiðarljósi.
Ítarlegri upplýsingar um þá sem hlutu viðurkenningarnar eru hér á eftir. Mynd af hópnum sem fékk viðurkenningu fylgir hér með. Ljósmyndari: Sigríður Marrow.
Nánar um þau, sem hlutu viðurkenningar á Degi lækna 2026.
Starfsemi Domus lækna á rætur að rekja til þess þegar í ljós kom að til stæði að leggja niður Domus Medica. Þá voru það fimm kvensjúkdómalæknar, Svanhvít Hekla Ólafsdóttir, Ýr Frisbæk, Jóhannes Heimir Jónsson, Karl Ólafsson og Ebba Margrét Magnúsdóttir, sem ákváðu að nú væri tækifæri til að láta gamlan draum rætast og opna eigin læknastofu. Þau vildu stofna læknastöð þar sem fyrst og fremst myndu starfa kvensjúkdómalæknar og stuðla þannig að því að auðvelt yrði fyrir konur að vita hvert þær ættu að leita ef þær þyrftu á slíkri aðstoð að halda. En einnig var hugmyndin sú að hafa góða kollega nálægt, geta consulterað hvert annað ef þörf væri á, farið í frí og vitað að skjólstæðingarnir væru í góðum höndum ef nauðsynlegt væri að sinna þeim þegar þau væru ekki á staðnum. Stofnendurnir vildu hafa læknastöðina hlýlega og heimilislega svo skjólstæðingum þeirra myndi ekki líða eins og þeir væru að bíða á hefðbundinni yfirlýstri biðstofu eða koma inn til læknis í herbergi sem væri fullt af yfirþyrmandi læknadóti og hvítum veggjum heldur í hlýlegt og öruggt andrúmsloft og umhverfi. Ákvörðunin var tekin vorið 2021 og hentugt húsnæði fannst fljótlega í Hlíðasmára 17 í Kópavogi. Húsnæðið var afhent 1. desember sama ár og opnun var auglýst 9. mars 2022, eða 3 mánuðum síðar. Þótt staðsetning og stærðin á húsnæðinu hafi hentað mjög vel, þá voru innviðirnir ekki eins og stofnendurnir vildu. Öllu var því ruslað út og 400fm hæð gerð fokheld á 2 dögum af öflugum iðnaðarmönnum og stofnendunum sjálfum, enda mátti engan tíma missa ef tímasetning opnunar átti að standast. Og hún stóðst. Stofnendurnir fengu aðstoð arkitekts með teikningar og skipulag en heiðurinn af yfirbragði og stíl á að mestu framkvæmdastjórinn Svanhvít Hekla Ólafsdóttir. Hjá Domus Læknum eru 7 læknastofur auk þess sem Sameind rannsóknarstofa er þar með aðstöðu fyrir blóðprufur. Á þessum 7 stofum starfa samtals 14 læknar, 11 kvensjúkdómalæknar og 3 almennir skurðlæknar, sem sinna þar tilvísunum og eftirfylgd eftir aðgerðum, sem þeir framkvæma á Akranesi. Með hópnum starfa tveir öflugir ritarar. Það hafa verið skráðar tæplega 11 þúsund komur það sem af er þessu ári, eða tæplega 2500 komur á mánuði.
Í tilnefningunni segir m.a.: 
Nýleg eining sem sinnir konum á öllum aldri. Læknar sem mynda þéttan hóp og vinna saman að því að bæta kvenheilsu og sinna fræðslu og forvörnum ásamt almennri stofuvinnu.
Hjartamiðstöðin var stofnuð 2008 og er til húsa í Holtasmára 1 í Kópavogi. Þar starfar þverfaglegt teymi hjarta-, innkirtla- og lungnalækna ásamt hjúkrunarfræðingum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum með það að markmiði að veita persónulega og faglega þjónustu. Þar eru framkvæmdar fjölbreyttar rannsóknir og meðferðir, s.s. hjartaómun, hjartalínurit, áreynslupróf, langtímaritun hjartsláttar og blóðþrýsting, kæfisvefnsrannsóknir, spirometriur o.fl. Einnig er lög áhersla á forvarnir, ráðgjöf og eftirfylgd fyrir einstaklinga með áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. Markmið starfseminnar er að sameina hátæknilega þjónustu, reynslu og mannlega nálgun til að stuðla að betri hjartaheilsu og auknum lífgæðum sjúklinga.
Í tilnefningunni segir m.a.:
Ég hef aldrei fengið jafn góða þjónusta og á stofunni þeirra í Kópavogi. Hjúkrunarfræðingarnir og ritararnir eru einstaklega vinaleg og hjálpsöm. Læknirinn minn er einnig frábær og allir mjög stundvísir.
Valgerður Árný Rúnarsdóttir fíknlæknir. Valgerður útskrifaðist sem læknir frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1992. Hún fór til Bandaríkjanna í sérnám í lyflækningum og fíknlækningum og lauk því árið 2000. Hún bætti við sig námi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðiskefinu og lauk því 2014. Árlega stundar hún endurmenntun, sækir námskeið og þjálfun. Frá aldamótum hefur hún ánægð verið í fullu starfi við fíknlækningar hjá SÁÁ ásamt því að sinna þar stjórnunarstörfum. Valgerður er aðjunkt við læknadeild HÍ og sinnir þar kennslu læknanema, fræðslu og klínískri kennslu. Samhliða hefur hún sinnt nokkrum klínískum rannsóknarstörfum og er meðhöfundur fjölda greina. Þá hefur hún verið virk í almenningsfræðslu og komið fram í fjölmiðlum um forvarnir á sínum sérsviðum um árabil. Einnig hefur hún setið í ýmsum ráðum og nefndum á vegum ráðuneyta og annarra stofnanna.
Þá hefur Valgerður verið mjög virk í starfi Læknafélags Íslands síðasta aldarfjórung. Hún var í stjórn LÍ í 4 ár, þar af varaformaður í 2 ár. Hún hefur verið í stjórn Félags sjúkrahúslækna frá 2021 og er þar nú gjaldkeri. Hún hefur verið í Siðfræðiráði LÍ sem og kjörnefnd. Þá hefur hún verið í lýðheilsuráði LÍ frá stofnun þess árið 2022. Einnig hefur hún setið flesta aðalfundi LÍ frá síðustu aldamótum og verið með málþing eða erindi á nær öllum Læknadögum síðasta aldarfjórðung. Loks er Valgerður félagi í alþjóðasamtökum fíknlækna, ASAM og ISAM.
Valgerður er Hafnfirðingur fædd 1964, móðir þriggja barna, amma fjögurra barnabarna og á stóra og samheldna fjölskyldu. Hún æfir hlaup, langhlaup og fjallahlaup, syngur í 100 kvenna kór og hefur verið í fjarbúð með æskuástinni frá Sviss undanfarin 20 ár og er því í BA námi í ítölsku við HÍ í hjáverkum.
Í tilnefningunni segir m.a.:
Óeigingjörn störf í þágu lýðheilsu landsmanna og baráttu fyrir skjólstæðinga með fíkn.
Tekur virkan þátt í og kemur alltaf vel fyrir í opinberri umræðu. Kennsluglöð og styður vel við yngri kollega.
Einnig birtust eftirfarandi ummæli um Valgerði nýlega á samfélagsmiðlum í tilefni af grein hennar í Læknablaðið um sérgrein sína:
Kæra Valgerður, ég tel að það sé erfitt að meta til fulls hversu miklu þú hefur breytt. Fyrir marga hefur þú verið fyrsta manneskjan sem gaf þeim von um að lífið gæti orðið betra. Fagmennska þín, hlýja og einlægi styrkur hafa haft djúp áhrif á starf SÁÁ, starfsfólk og á það fólk sem hefur staðið á mjög erfiðum stað í lífinu.
Nýsköpunarfyrirtækið Careflux ehf. Fyrirtækið var stofnað árið 2024 eftir nokkura ára rannsóknarsamstarf stofnenda þess við Háskólann í Reykjavík. Upphaflegir stofnendur eru Steindór Oddur Ellertsson læknir, Stefán Ólafsson lektor og Hrafn Loftsson dósent, báðir við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Aðrir læknar sem eru hluti af fyrirtækinu eru Ívar Elí Sveinsson, sérnámslæknir í heimilislækningum, Alexander Elfarsson heimilislæknir og Jón Halldór Hjartarson heimilislæknir.

Markmið Careflux er að minnka skráningar- og pappírsvinnu heilbrigðisstarfsfólks ásamt því að bæta horfur sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Fyrirtækið þróar hugbúnaðarlausnir sem nýta gervigreind til þess að létta undir með verkferlum innan heilbrigðiskerfisins ásamt því að vera með klínísk gervigreindarlíkön í þróun og rannsóknum. Helstu lausnir Careflux eru Merkúr, sem greinir skilaboð frá sjúklingum og myndar svartillögur og rafræn eyðublöð, og Skríban sem hlustar á samtal starfsmanns og skjólstæðings og myndar klíníska samantektarnótu og verkefnalista.
Í tilnefningunni segir m.a.:
Careflux mun draga verulega úr tölvuvinnu lækna og bæta þjónustu við sjúklinga. Gæti aukið afköst lækna.
Jón R. Kristinsson barnalæknir. Jón fæddist í Borgarholti í Ásahreppi í Rangárvallasýslu 1943. Hann ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Hann lauk stúdentsprófi frá ML 1965, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1972, lauk áfangaprófum í greinum barnalækninga frá Háskólunum í Lundi, Stokkhólmi, Malmö, og við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og er sérfræðingur í barnalækningum frá 1980.
Jón var sérfræðingur við Barnaspítala Hringsins 1981-2014 og starfrækti eigin lækningastofu í Reykjavík frá 1983 til 2024 í liðlega 40 ár. Hann var skólalæknir Vesturhlíðarskóla, sérfræðingur í barnalækningum við ungbarnaeftirlit Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, á Selfossi og Akranesi og á Heilsugæslustöð Garðabæjar og var yfirlæknir í afleysingum á Höglandssjukhuset, Eksjö/Nässjö og Jönköping Läns Centrallasarett.
Jón sinnti stundakennslu við læknadeild HÍ, Munksjöskolen, vårdyrkesskole í Jönköping, við námsbraut í hjúkrun við HÍ og Hjúkrunarskóla Íslands.
Jón sat í stjórn Félags barnakrabbameins- og blóðsjúkdómalækna (NOPHO) um árabil, í Barnaverndarráði Íslands 1987-2002 og í kærunefnd barnaverndarmála 2002-2013. Hann sat í samstarfsnefnd um stofnun Barnaheilla og sat í fyrstu stjórn félagsins. Hann var í samráðsnefnd um stofnun Barnahúss og var fulltrúi barnadeildar þar. Loks sat Jón í samstarfsnefnd norrænna lækna um faraldsfræði gigtarsjúkdóma í börnum.
Eiginkona Jóns til tæplega 60 ára er Kristrún Ragnhildur Benediktsdóttir, læknir og fv. dósent við HÍ. Þau eiga fjögur börn.
Í tilnefningunni segir m.a.:
Jón hefur sinnt krabbameinssjúkum börnum og börnum með gigt af mikilli eljusemi og fagmennsku um áraraðir. Hann stóð að stofnun Barnahúss með Þóru Fischer fæðinga- og kvensjúkdómalækni, sem var bylting á sínum tíma.
Ljósmyndir sem fylgja frétt voru teknar af Sigríði Marrow
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13