Umdeild ákvörðun að opna landið - Már Kristjánsson á Rás 1

Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun að ekki ríkti einhugur innan heilbrigðiskerfisins um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að opna landið á ný. 

„Þessi ákvörðun um að opna landið er mjög umdeild. Það sýnist sitt hverjum. Margir af mínum kollegum eru mjög hugsi um þetta og jafnvel reiðir að þetta skuli vera gert,“ sagði Már í morgun.

Már sagði að tíminn eigi eftir að leiða í ljós hversu farsæl ákvörðun þetta reynist. Viðbrögð fólks séu sterk og skiljanleg.

„Ég held að þessi sterku viðbrögð fólks séu að sumu leyti angist eða ótti um að við séum að kalla yfir okkur hörmungar, sem kann að vera að við séum að gera í ljósi þess sem við þekkjum utan úr heimi, þar sem samfélög fóru hryllilega illa út úr þessu. Við virðumst hafa sloppið fyrir horn enn þá alla vega,“ sagði hann. 

„Mér finnst þetta vera réttmæt tilfinning hjá fólki að þetta muni kannski verða eitthvað hræðilegt tímabil. Það er alveg skiljanlegt. En þá þurfum við líka að setja okkur í stellingar og búa okkur undir þetta. Og reyna að draga þá úr áhrifum þessa sem mest við megum.“

Hlusta má á viðtali við Má hér.

Mynd/Skjáskot/RUV