Um 150 Íslendingar hafa lokið læknanámi ytra frá árinu 2010

Frá árinu 2010 hafa 149 Íslendingar lokið læknanámi erlendis. Þar af hafa 136 lokið náminu í Danmörku eða Ungverjalandi. Þetta kemur fram í svari Landlæknis við fyrirspurn blaðsins.

Tilefnið er metfjöldi íslenskra námsmanna sem leggja stund á læknisfræði við Comenius-háskóla í bænum Marin í Slóvakíu. Fram kom í Morgunblaðinu nýverið að um 160 Íslendingar verða þar í námi í haust. Vegna fjöldans er rætt um "litla -Ísland" í háskólaþorpinu.

Samkvæmt heimildum blaðsins hafa fjórir Íslendingar útskrifast sem læknar frá Slóvakíu. Þá hafa nokkrir útskrifast frá læknaskóla í Danmörku eftir að hafa lokið fyrri hluta námsins í Slóvakíu. Læknanámið er sex ára nám.

Sjá grein í Morgunblaðinu