Kl. 12:00 í dag lauk síðari framboðsfresti til formanns stjórnar LÍ sem tekur við á aðalfundi LÍ 2025. Aðalfundurinn verður haldinn 2. - 3. október 2025 í Stykkishólmi.
Í fyrri framboðsfresti barst framboð frá sitjandi formanni, Steinunni Þórðardóttur öldrunarlækni. Engin fleiri framboð bárust í síðari framboðsfresti.
Steinunn Þórðardóttir er því sjálfkjörinn formaður stjórnar LÍ frá aðalfundi 2025 til tveggja ára.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13