Sigurður Böðvarsson leysir Hjört Kristjánsson af á Suðurlandi

Sigurður Böðvarsson, yfirlæknir göngu- og lyflækningadeildar, sinnir starfi framkvæmdastjóra lækninga á Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til eins árs. Hann sinnir starfinu í fjarveru Hjartar Kristjánssonar sem er kominn í ársleyfi frá 1. júní.

Sigurður hefur starfað hjá heilbrigðisstofnuninni frá 1. desember 2018. „Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í krabbameinslækningum í Gundersen Health System, La Crosse í Wisconsin, Green Bay Oncology, Green Bay, Wisconsin og sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Landspítala,“ segir á vef HSU.

Þar segir einnig að Sigurður sé sérfræðingur í krabbameinslækningum og hafi áralanga reynslu af meðferð krabbameinssjúklinga, rannsóknum, kennslu og stjórnun. Hann var um tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Læknafélags Íslands. Hann lauk meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2009.

Í nýútkomnu Læknablaðinu er viðtal við Hjört. Þar fer hann yfir baráttu heilbrigðisstofnunarinnar við COVID-19 í Vestmannaeyjum. Viðtalið má lesa hér.

Mynd/Skjáskot/HSU