Læknadagar 2026 - Áfengi í alfaraleið

Upptaka frá málþingi um áfengi og forvarnir Læknadögum í Hörpu 2026

Læknadagar stóðu fyrir málþingi fyrir almenning um áfengi og forvarnir 21. janúar 2026.
Málþingið Skál fyrir betri heilsu! – Áfengi í alfaraleið – Samtal við samfélagið var haldið í Silfurbergi í Hörpu miðvikudagskvöldið 21. janúar 2026 
Tilgangurinn með málþinginu var að upplýsa almenning um þá miklu normalíseringu áfengisneyslu sem orðin er og ná fram samtali um hvernig snúa verði þeirri þróun við svo lýðheilsa eflist og fjármagn sparist. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður, var málþingsstjóri. Málþingið var öllum opið.

Fyrirlesarar - hlekkur á hvern fyrirlesara:

Alma Möller, heilbrigðisráðherra

Lára G. Sigurðardóttir, læknir og nemi í taugavísindum

Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir

Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir

Karl Andersen, hjartalæknir

Valgerður Rúnarsdóttir, fíknilæknir

Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði

Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur

Hlekkur á málþingið í heild hér