Heilbrigðisþing 2023



Heilbrigðisþing 2023

- Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare

Heilbrigðisþing 2023 verður haldið í Hörpu þann 14. nóvember. Dagskráin er afar metnaðarfull og með norrænu og alþjóðlegu yfirbragði. Þingið fer fram á ensku og hefur yfirskriftina: „Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare.“ Á vef þingsins eru allar upplýsingar um dagskrána og fyrirlesarana og þar fer skráning þátttöku fram.

Þetta er sjötta árið í röð sem heilbrigðisráðuneytið efnir til heilbrigðisþings þar sem áhersla er alltaf lögð á að fjalla um mikilvæg málefni sem varða heilbrigðiskerfið og heilbrigðisþjónustu í nútíð og framtíð. Að þessu sinni verður sjónum beint að tækifærunum sem felast í nýtingu margvíslegra heilbrigðisgagna, stafrænnar þjónustu og gervigreindar.