Boðað er til morgunverðarfundar um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði fimmtudaginn 27. ágúst kl. 9:00–10:30 í Norræna húsinu.
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:30.
Á fundinum verða kynntar nýjar og ítarlegar niðurstöður úr könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði. Sérstök áhersla verður lögð á stöðu fólks á leigu- og eignamarkaði fyrstu tíu árin eftir námslok.
Könnunin var unnin fyrir aðildarfélög BHM og eftirtalin félög háskólamenntaðs fólks utan bandalagsins: Byggingafræðingafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Verkfræðingafélag Íslands.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta háskólamenntuðu fólki þegar það stígur sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði. Meðal þess sem farið verður yfir er hvort og hvenær fólk nær að eignast húsnæði, staða þess á leigumarkaði og hvernig húsnæðiskostnaður hefur áhrif á fjárhag og lífskjör að námi loknu.
Hægt er að skrá sig HÉR.
Dagskrá
09:00 – Setning fundar
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Kynning á niðurstöðum könnunar
Inga Rún Sæmundsdóttir, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
Erindi
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku
Pallborðsumræður
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands
10:30 – Fundarslit
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Fundurinn er öllum opinn og verður honum streymt.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13