Vorið 2026 stofnaði Læknafélag Íslands fagráð innan sinna vébanda og var öllum starfandi sérgreinafélögum lækna boðið að tilnefna fulltrúa. Hlutverk fagráðsins er að styrkja LÍ sem fagfélag lækna en ráðið sjálft útbýr starfsáætlun fyrir verkefni hvers ár. Sem dæmi um verkefni sem ráðið getur haft aðkomu að er uppbygging, forgangsröðun og verkaskipting innan heilbrigðisþjónustunnar, símenntun lækna, marklýsingar og skipulag sérnáms, fagleg viðmið og klínískar leiðbeiningar, verkferlar og faglegir vegvísar, sem og upplýsingamiðlun til almennings. Einnig mun ráðið veita umsagnir um frumvörp og lagabreytingar og tilnefna fulltrúa í faglega starfshópa og vinnu aðila eins og Embættis Landlæknis og heilbrigðisráðuneytis þegar eftir slíku er óskað.
Í fagráðinu sitja fulltrúar 27 sérgreinafélaga lækna. Til næstu tveggja ára skipa stjórn þess Bjarni Geir Viðarsson frá Skurðlæknafélagi Íslands sem er jafnframt formaður, Arnar Þórisson frá Félagi röntgenlækna, Lilja Arnardóttir frá Félagi íslenskra heimilislækna, Lovísa Kristín Sigurjónsdóttir frá Félagi íslenskra barna -og unglingageðlækna, Matthildur Sigurðardóttir frá Félagi íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Sigrún Ásgeirsdóttir frá Svæfinga- og gjörgæslulæknafélagi Íslands og Þórunn Halldóra Þórðardóttir frá Blóðfræðifélagi Íslands.