FRÉTTATILKYNNING
um Dag lækna 17. maí 2026 og dagskrá fundar í tilefni hans
Stjórn Læknafélags Íslands (LÍ) ákvað árið 2024 að 17. maí ár hvert sé Dagur lækna. Þessi dagur var valinn því hann tengist náið sögu lækninga á Íslandi. Fyrsti sérmenntaði læknir landsins, sem einnig varð fyrsti landlæknirinn, Bjarni Pálsson, fæddist þennan dag árið 1719.
Í tilefni Dags lækna 2026, sem er sunnudaginn 17. maí nk., stendur stjórn Læknafélags Íslands og stjórn nýstofnaðs Lækningaminjasjóðs Jóns Steffensen fyrir opnum fundi í Þjóðminjasafninu kl. 14. Á fundinum verður fjallað um Lækningaminjasjóð Jóns Steffensen, tónlistarflutningur undir forystu Michaels V. Clausen barnalæknis og afhentar verða viðurkenningar til lækna og starfsemi lækna. Dagskráin er hér fyrir neðan.
Í byrjun þessa árs ákvað stjórn LÍ að stofna til viðurkenninga fyrir lækna og starfsemi þeirra, sem veittar yrðu árlega á Degi lækna. Ákveðið var að á hverju ári verður kallað eftir tilnefningum bæði almennings og lækna á fyrirmyndarvinnustað eða starfsemi lækna, fyrirmyndarlækni, framúrskarandi nýsköpun og/eða gæðaastarfi lækna og ævistarfi læknis. Almenningur getur bæði tilnefnt fyrirmyndarvinnustað eða starfsemi lækna og fyrirmyndarlækni. Læknar geta tilnefnt í alla flokkana. Rökstyðja þarf allar tilnefningar. Kallað var eftir tilnefningum á heimasíðu LÍ, á samfélagsmiðlum auk þess sem auglýsing var birt í Læknablaðinu. Skemmst er frá því að segja að tilnefningar fóru fram úr væntingum. Augljóslega er um nýmæli að ræða sem tekur tíma að hasla sér völl en stjórn LÍ er bæði ánægð með hversu margar tilnefningar bárust og ekki síður hversu vel rökstuddar og úthugsaðar þær reyndust vera. Stjórn LÍ fór yfir allar tilnefningar og tók í kjölfarið ákvörðun um hvaða aðilar hljóta þessar viðurkenningar í fyrsta sinn á Degi lækna 2026. Viðurkenningarnar verða eins og fyrr segir veittar á fundinum í Þjóðminjasafninu.
Dagskrá fundarins, sem er öllum opinn og hefst kl. 14 næsta sunnudag, er þessi:
Tónlistaratriði undir forystu Michaels V. Clausen barnalæknis.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands gsm 696 7699.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13