Átakið gegn lifrarbólgu C í The Lancet - Sigurður í Morgunblaðinu

Vísindatímaritið The Lancet Gastroenterology & Hepatology birti á dögunum grein eftir hóp vísindamanna á Landspítala, Sjúkrahúsinu Vogi og hjá embætti landlæknis um árangur átaksinsins sem miðaði að útrýmingu lifrarbólgu C.

„Við höfum haldið fjöldann allan af erindum um átakið og kynnt mörg vísindaágrip á alþjóðlegum ráðstefnum á undanförnum árum. Það hafa margir leitað til okkar og horft á hvernig við nálgumst þetta vandamál. Við höfum líka lært af öðrum,“ sagði Sigurður Ólafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á Landspítala, við Morgunblaðið í frétt frá síðasta föstudegi. Hann hefur verið í forsvari fyrir það verkefnið.

Hann sagði við Morgunblaðið að „þverfagleg nálgun sem hér var beitt og samvinna við fíknilækningar á Vogi hafi gert kleift að bjóða þessa þjónustu þeim sem sprauta sig með vímuefnum í æð. Sá hópur hefur víða annars staðar orðið út undan eða verið útilokaður frá meðferð. Markaðsvirði lyfja sem Íslendingar fengu frá Gilead í átakinu er metið allt að tíu milljarðar.“

Mynd/Skjáskot/Morgunblaðið

  • Sjáðu vísindagreinina í Lancet hér.
  • Áskrifendur að Morgunblaðinu geta nálgast fréttina hér.
  • Frétt Landspítala hér.