Aðalfundur Læknafélags Íslands (LÍ) 2026 var haldinn í Kópavogi 6. nóvember sl. Aðalfundarfulltrúar voru 83 og mættu flestir til fundarins. Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller og landlæknir María Heimisdóttir ávörpuðu aðalfundargesti og svöruðu fyrirspurnum.
Í stjórn LÍ starfsárið 2026-2027 verða: Steinunn Þórðardóttir, formaður, Hjördís Ásta Guðmundsdóttir og Brynja Kristín Einarsdóttir frá Félagi almennra lækna, Gunnar Þór Geirsson og Oddur Steinarsson frá Félagi ísl. heimilislækna, Hildur Jónsdóttir og Jóhanna Guðrún Pálmadóttir frá Félagi sjúkrahúslækna og Ragnar Freyr Ingvarsson og Hjálmar Þorsteinsson frá Læknafélagi Reykjavíkur. Stjórnin skipti með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi, sem var í gær. Oddur verður varaformaður þetta starfsárið, Brynja Kristín verður gjaldkeri og Jóhanna Guðrún ritari.
Á aðalfundinum var tilkynnt kjör þriggja nýrra heiðursfélaga LÍ þeirra Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Magnúsar Jóhannssonar og Sigurveigar Pétursdóttur. Jóhann Ágúst er útnefndur heiðursfélagi fyrir frumkvöðla- og forystustörf í þágu heimilislækna og heimilislækninga. Magnús er útnefndur heiðursfélagi fyrir áratuga framlag til þróunar íslensks læknisfræðilegs orðaforða. Sigurveig er útnefnd heiðursfélagi fyrir kjarabaráttu og hagsmunagæslu í þágu lækna. Þá var Jóhanni Heiðari Jóhannssyni sérstaklega þakkað fyrir liðlega 40 ára störf í Orðanefnd lækna þar sem hann lengst af var formaður. Jóhann Heiðar hefur verið heiðursfélagi í LÍ frá 2018.
Á aðalfundinum voru samþykktar fjölmargar ályktanir um málefni sem snerta heilbrigðismál:
Ályktun um biðlista lýsir þungum áhyggjum af löngum biðlistum eftir skurðaðgerðum og skorar á stjórnvöld að tryggja nægilegt fjármagn, mönnun og aðstöðu til að ná þeim biðtímaviðmiðunum sem sett hafa verið.
Ályktun um mikilvægi lækna í hlutastarfi innan Landspítala harmar stefnu stjórnenda Landspítala gagnvart læknum í hlutastarfi og bendir á að læknar í hlutastarfi séu mikilvægur hluti starfsemi Landspítala og eigi ríkan þátt í að tryggja sérhæfða þjónustu, mönnun vakta, kennslu og vísindastarfsemi.
Ályktun um vernd trúnaðarmanna fordæmir ólögmæta niðurlagningu starfa trúnaðarmanna félagsins.
Ályktun um stöðu og framtíð sérnáms á Íslandi leggur áherslu á mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar og þróunar sérnáms lækna á Íslandi. Stjórnvöld eru hvött til að standa vörð um þá uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað. Jafnframt er bent á mikilvægi þess að greina hvaða sérnám sé hægt að byggja upp á Íslandi og koma á laggirnar formlegu samstarfi við erlend háskólasjúkrahús og stofnanir til að tryggja fjölbreytt og fullnægjandi námstækifæri sé þess þörf.
Ályktun um atvinnufrelsi og fjölbreytt rekstrarform í heimilislækningum skorar á heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis að tryggja atvinnufrelsi sérfræðinga í heimilislækningum til samræmis við aðrar sérgreinar í læknisfræði. Aðalfundurinn telur að aukið valfrelsi og fjölbreyttari rekstrarform geti stuðlað að bættu starfsumhverfi heimilislækna, fjölgun þeirra og þar með bættu aðgengi landsmanna að heimilislæknum.
Ályktun um fjármögnun grunnþjónustu heilsugæslunnar minnir ríkisstjórnina á stjórnarsáttmála sinn um að vinna að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn. Þá er harmað að sérnám heimilislækna sé vanfjármagnað. Skorað er á heilbrigðisráðuneyti, fjármálaráðuneyti og forsætisráðuneyti að tryggja fjármögnun fyrir grunnþjónustu heilsugæslunnar svo hægt verði markvisst að vinna að því að allir landsmenn hafi sinn fasta heimilislækni.
Ályktun um eflingu og sjálfstæði Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu lýsir yfir eindregnum stuðningi við starfsemi Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) og mikilvægt hlutverk hennar í faglegri þróun, gæðastarfi, rannsóknum og menntun innan heilsugæslunnar. Aðafundurinn telur brýnt að efla faglegt og stjórnsýslulegt sjálfstæði ÞÍH og segir öfluga og sjálfstæða þróunarmiðstöð vera fjárfestingu í framtíð heimilislækninga og heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Samþykkt var að greinargerð sem fylgdi tillögunni yrði send út með ályktuninni.
Ályktun um stöðuna á Gaza og hlutleysi heilbrigðisþjónustu fordæmir þjóðarmorð á Palestínufólki á Gaza og eyðileggingu heilbrigðisstofnana, dráp á heilbrigðisstarfsfólki og fangelsun án dóms og laga. Aðalfundurinn lýsir jafnframt eindregnum stuðningi við tímamótayfirlýsingu Alþjóðasamtaka lækna um hlutleysi heilbrigðisþjónustu þar sem rík áhersla er lögð á að læknafélög tali skýrt gegn brotum á hlutleysi heilbrigðisþjónustu, jafnvel þegar stjórnvöld í þeirra eigin löndum eiga í hlut.
Ályktun gegn notkun óskráðra peptíða lýsir þungum áhyggjum af vaxandi innflutningi, sölu og notkun óskráðra, ólöglegra peptíða. Bent er á að notkun þeirra geti haft í för með sér alvarlega heilsufarsáhættu. Efnagreiningar á vörunum hafi leitt í ljós að innihald þeirra er óáreiðanlegt, virk efni oft ekki í samræmi við merkingar og mengun mikil. Aðalfundurinn skorar á heilbrigðisyfirvöld að bregðast við án tafar með skýru regluverki, öflugu eftirliti með innflutningi, sölu og markaðssetningu efnanna, kerfisbundinni vöktun á útbreiðslu notkunar og heilsufarslegum afleiðingum auk markvissar fræðslu til almennings, ekki síst ungs fólks.
Ályktun gegn auknu aðgengi að áfengi leggst gegn því að aðgengi að áfengi verði aukið með því að leyfa sölu á því í almennum verslunum, netsölu og heimsendingu. Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu þess og þann samfélagsskaða og kostnað sem áfengi veldur.
Nánar um mynd: Frá vinstri: Sigurveig Pétursdóttir, Jóhann Ágúst Sigurðsson, Steinunn Þórðardóttir, Magnús Jóhannsson, Jóhann Heiðar Jóhannsson.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13