Formaður ÖLÍ, Lára Halla Maack, setti fundinn og lagði til að Magnús R. Jónasson yrði skipaður fundarstjóri og Sveinn Magnússon fundarritari. Samþykkt. Gengið var til boðaðrar dagskrár.
1) Formaður flutti skýrslu sína og greindi frá helsu þáttum í starfsemi deildarinnar, sem í byrjun einkenndust nokkuð af erfiðleikum við að yfirtaka allflókið forrit sem heldur utanum félagatalið. Einnig var talsvert umstang við að taka yfir sjóði deidarinnar frá fyrri stjórn.
Greint var frá haustferðinni 2025 og áætluðum ferðum haustið 2026 um Snæfellsnes og vorið 2027 til Dublin.
Sagt var frá Degi lækna, sem haldinn verður hátíðlegur í Þjóðminjasafni 17. maí þar sem m.a. verður greint frá nýjum minningarsjóði prófessors Jóns Steffensen.
2) Vésteinn Jónsson gjaldkeri deildarinnar kynnti reikninga ársins 2025. Hagnaður nam rúmum 3,8 milljónum og skuldlaust eigið fé tæpum 5,4 milljónum.
3) Engar athugasemdir komu fram um skýrslu formanns og reikninga félagsins.
4) Kosning stjórnar. Allir stjórnarmeðlimir voru kosnir 2025 til tveggja ára og sitja því áfram eitt ár. Sama á við um skoðunarmann reikninga.
5) Rætt var um árgjald. Samþykkt var að það yrði 5000 kr.
6) Lagabreytingar. Engar tillögur höfðu borist um lagabreytingar.
7) Fleira var ekki gert, fundarstjóra var þökkuð fundarstjórn og fundi slitið um kl. 15:30.
Sveinn Magnússon fundarritari
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13