Aðalfundur ÖLDLÍ 6. Maí 2026
Skýrsla formanns, LHM, fyrir starfsárið maí 2025 til maí 2026
STJÓRNARFUNDIR:
Stjórn ÖLDLÍ skipa frá maí 2025: Lára Halla Maack formaður (laralla@simnet.is ) Sveinn Magnússon ritari (sveinnmagnusson@gmail.com), Vésteinn Jónsson gjaldkeri (vjonsson@med.is), Halldóra Ólafsdóttir meðstjórnandi (halldorao@simnet.is) og Kristjana Kjartansdóttir meðstjórnandi (kristjanask@gmail.com).
Stjórnarfundir voru haldnir mánaðarlega, milli fræðslufunda. Ritari stjórnar, SM, gætti barna í Kalíforniu á útmánuðum 2026 og gekk Kristjana í hans skarð á því tímabili.
BYRJUNARÖRÐULEIKAR:
A) Skráning stjórna félaga eru tímafrekar. Tóku allt sumarið 2025 og lögfræðing. En félagalögum var breytt fyrir nokkrum árum og nú eru þau ströng, til að koma í veg fyrir peningaglæpi af ýmsu tæi. Þess ber að geta að fyrrum eigandi ÖLDLÍ, Sigurður Guðmundsson, var sviftur eignarhaldi sínu við stjórnarskipti og núverandi eigandi öldungadeildarinnar er Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur LÍ. En formann grunar að hún hætti störfum í sumar, og þá verður deildin að finna nýjan eiganda, eða hvað ?
B) Apaspil: Lí gengur fyrir MAILCHIMP græjunni, en hún reyndist erfiður ljár í þúfu stjórnar til að byrja með. En Vésteinn Jónsson, tölvugúrú stjórmarinnar, reddaði deginum. Mailchimp er kennt við Curious George, og stal lógóinu sínu af honum fyrir 35 árum, en barnasagan um hann er frá 1940. Afar og ömmur í ÖLDLÍ kannast kannske við hann sem Friðþjóf Forvitna. Sjá mynd no 1af lógóinu og mynd no 2 af mjúkdýrunum Friðþjófi Forvitna og LHM
FRÆÐSLUFUNDIR:
Horfið var frá bókagjöfum til fræðara, en greitt var stundum fyrir fræðsluna í reiðu. Fundina sóttu yfirleitt 40 – 90 manns. Vínarbrauðslengjum var fjölgað, þar eð þau átust of oft upp í hvellinum.
1) 3. sept 2025: María Hildur Maack: Stórþörungar. Hefðir og nýjungar.
2) 1. okt 2025: Sigrún Helgadóttir: Skyndimynd af Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi.
3) 5. nóv 2025: Óskar Þór og Jón Baldvin Halldórssynir: Akureyrarveikin.
4) 3. des 2025: Nanna Rögnvaldardóttir: Skipt um kúrs: Úr jólamat í jólabækur.
5) 7. Jan 2026: Sigurdís Haraldsdóttir: Lækningar á 21. öld. Bylting í krabbameinslækningum
6) 4. feb 2026: Sig:urður E Þorvaldsson: Íslandsvinurinn dr Charcot. Nokkur æviatriði og strand “Pourquoi Pas” á Mýrum 1936.
7) 4. mars 2026: Eiríkur Jónsson: Að leggjast í skáldskap.
8) 8. Apríl 2026: Dagur Bjarnason: Heilaörvun. – Vítt og breitt.
9) 6. Maí 2026, væntanlega, eftir aðalfundinn: Silja Aðalsteinsdóttir: Jane Austen og hljóða byltingin.
FERÐALÖG:
1) Ferð farin um Reykjanes og nágrenni Selfoss 16./17. September 2025. Þáttakendur voru 34 og fararstjóri var Sveinn Magnússon, ritari ÖLDLÍ. Sjá pistil LHM um ferðina í Læknablaðinu. Vésteinn, gjaldkeri, gerði bíómynd um ferðina. Sýnd á aðalfundinum 2026.
2) Ráðgerð ferð um Snæfellsnes og Stykkishólm 29. september til 1.október 2026. Gist á Búðum og Hótel Stykkishólmi.
3) Ráðgerð er ferð öldunga til Dublin 5. til 9. apríl 2027
NAFNSPJÖLD ÖLDUNGA:
Ákveðið var að efla skyndiminni og skyndikynni öldunga með því að gefa út nafnspjöld. Menn bera þau á fundum og rifja betur og fljótar upp gamlar sögur. Þau eru ekki einnota, og allir hvattir til að muna eftir þeim, alltaf. Þau eru nú kölluð Alzheimerspjöldin af ellismánurum.
Það skal skráð hér, svo að engin ruglist á því framar með lógó ÖLDLI (sjá mynd no 3), að stóri hringurinn með snákaskástrikinu er danskt Ö. Svo smart.
ANNAÐ:
Meðlæti: Vínarbrauðin urðu ofan á í stjórnardiskússjón um meðlæti með kaffinu. Þrátt fyrir harða baráttu hollustumanna. Bernhöftsbakaríið á Klapparstíg verðlaunaði ÖLDLÍ með 20 % afslætti, -“vegna þess að læknar hafa bjargað svo mörgum mannslífum”.
Ferðapitlan: Það varð ofan á þetta árið varð, að veita ekki áfengi í haustferðinni sl. september, en hefð er fyrir því ÖLDLÍ stjórnir undanfarinna ára hafa vökvað ferðalanga. Vert er að minnast í þessu samhengi að LÍ lagði áherslu á heilsuskaða áfengis á læknadögum í janúar 2026, nokkrum mánuðum síðar. En ferðapitlan kom í staðinn.
LÆKNABLAÐIÐ:
ÖLDLÍ sér um eina síðu í blaðinu, ritstjóri er Sveinn Magnússon. Stjórnarlimir hafa skipst á að sjá um skrifin. Tengiliður síðunnar er Rósa Steinunn Sturludóttir (rosa@lis.is). Ef menn hafa áhuga á að skrifa fyrir öldunga, velkomið. 600 orð og mynd af skrifanda.
ÁRGJALD ÖLDLÍ:
Nokkur umræða hefur verið innan stjórnar um árgjald félaga: 10 þ ús kr / ári. Stjórnin vill ekki safna miklum sjóðum frá öldungum, en hefur líka ekki verið dugleg að eyða sjóðum ÖLDLÍ. Engin ákvörðun hefur verið tekin enn í því máli, enda mál aðalfundar.
Svo skrifar:
LHM 15. apríl 2026
P.s. Þau eru öflug, Svenni, Vésteinn, Halldóra og Kristjana. Ég þakka guði fyrir þau alla daga.
Til baka