Fundargerð aðalfundar FÍR 2025

Aðalfundargerð:

Aðalfundur FÍR var haldin 3. apríl 2025 kl 20 í sal Læknafélags Íslands, Hlíðarsmára 8, Kópavogi.

1. Fundarsetning.
Hjalti Már Þórisson setti fundinn og var kjörinn fundarstjóri án athugasemda. Fundaritari var kjörinn Arnar Þórisson.

2. Skýrsla formanns:
- Formaður flutti skýrslu stjórnar og var skýrsla stjórnar síðan rædd.

3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
-Gjaldkeri lagði fram ársreikning og gerði grein fyrir bókhaldi félagsins. Staðan á reikningum félagsins um síðustu áramót var kynnt fyrir félagsmönnum. Ársreikningurinn var síðan borinn upp til samþykktar og samþykktur.

4. Skýrslur nefnda.
-Engar nefndir hafa verið starfandi á vegum félagsins.

5. Lagabreytingar.
-Engar lagabreytingar voru lagðar til.

6. Ákvörðun félagsgjalda.
-Fjárhagsstaða félagsins er áfram nokkuð góð. Stjórn leggur því til að engin félagsgjöld verða innheimt af félagsmönnum enda hefur starfsemi félagsins verið lítil.

7. Kjör stjórnar:
-Núverandi stjórn var endurkjörin einróma.

Formaður: Hjalti Már Þórisson
Gjaldkeri: Arnar Þórisson
Ritari: Haraldur Bjarnason
Meðstjórnandi Guðrún Lilja Óladóttir

8. Kjör skoðunarmanns reikninga:
-Ólafur Kjartansson var kosinn skoðunarmaður reikninga.

9. Kjör fulltrúa í stjórn Norræna röntgenlæknafélagsins
-Guðrún Lilja Óladóttir var nýlega kjörin í stjórn Acta Radiologica. Umræður voru á fundinum um næsta Norræna þing röntgenlækna á Íslandi en það mun verða á næstu árum.

10. Önnur mál
-Umræður voru um kennslumál og hvernig við getum betur kynnt fagið fyrir læknanemum og unglæknum.

-Guðrún Lilja lagði fram tillögum um að FÍR myndi styrkja árlega einn sérnámslækni til að fara á Norræna þing röntgenlækna og kynna þar tilfelli. Slíkt væri mikilvægt til að auka áhuga á faginu og stuðla að kynningu unglækna á starfinu á öðrum Norðurlöndum. Tillagan var samþykkt einróma. Einn unglæknir/sérnámslæknir verður styrktur árlega með greiðslu flugfars, gistingar og uppihalds.

Fleira gerðist ekki. Formaður kallaði eftir samþykki fundarins fyrir því að fundarstjóra og fundarritara yrði falið að ganga frá aðalfundargerð. Það var samþykkt.
Formaður sleit fundi um 20:45.

Fundarritari Arnar Þórisson

Fundarstjóri Hjalti Már Þórisson


Til baka