Lög félagsins

Lög Félags íslenskra ofnæmis- og ónæmislækna

1) Félagið heitir FÉLAG ÍSLENSKRA OFNÆMIS- OG ÓNÆMISLÆKKNA (ICELANDIC SOCIETY
of ALLERGY and CLINICAL IMMUNOLOGY).

2) Félagsmenn geta þeir orðið sem öðlast hafa sérfæðiviðurkenningu í klínískri ónæmisfræði, sem
undirsérgrein almennrar lyflæknisfræði eða almennra barnalækninga. Slíkir sérfræðingar, í
þessum lögum nefndir ofnæmis- og ónæmislæknar, hafa sérhæft sig í hagnýtingu grundvallarþátta
ónæmisfræðinnar til greiningar og meðferðar á sjúkdómum í ónæmiskerfinu eða sjúkdómum í
öðrum líffærakerfum sem hafa ónæmisfræðilega meingerð.

(Lagabreyting um aukaaðild samþykkt á aðalfundi 3. desember 2010):
Allir læknar sem áhuga hafa á ofnæmis- og ónæmislækningum, geta sótt um að gerast aukafélagar
í FÍOÓL. Þeir hafa þó, sem aukafélagar, ekki atkvæðisrétt á aðalfundi, né í málefnum er varða
kjaramál eða önnur sérhagsmunamál félagsins og hafa ekki rétt til stjórnarsetu. Umsókn um
aukaaðild skal berast skriflega til stjórnar FÍOÓL sem svo leggur tillögu fyrir félagsfund.
Aukafélagar greiði hálft árgjald.

3) Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

4) Markmið félagsins er að:

a. Efla ofnæmis- og ónæmislækningar sem klíníska sérgrein.
b. Skilgreina og kynna hlutverk lækna með sérmenntun í greininni innan
hinnar hefðbundnu sérgreinaskiptingar læknisfræðinnar.
c. Stuðla að bestu læknisþjónustu í sérgreininni sem völ er á.
d. Innleiða hérlendis nýjungar sem fram koma erlendis.
e. Koma fram sem umsagnaraðili um þróun ofnæmis- og ónæmislækninga.
f.  Vera hagsmunagæsluaðili fyrir félagsmenn, þ.á.m. í kjaramálum.


5) Félagið hyggst ná markmiðum sínum með:

a. Fræðslustarfi fyrir félagsmenn, aðra lækna, sjúklinga og ráðamenn er málið
varðar.
b. Samstarfi við önnur sérgreinafélög, heildarsamtök lækna og sjúklingafélög
hérlendis.
c. Samstarf við og þátttöku í starfi erlendra samtaka ofnæmis- og
ónæmislækna.
d. Samstarfi við þær stofnanir hérlendis er annast kennslu og rannsóknir í
ofnæmis- og ónæmisfræðum.


6) Stjórn félagsins skipa 5 menn sem kostnir eru á aðalfundi: Formaður, ritari, gjaldkeri og tveir
meðstjórnendur. Þeir skulu kostnir til 2ja ára í senn og er heimilt endurkjör til sama embættis einu
sinni.

7) Árgjald skal ákveðið á aðalfundi.

8) Aðalfundur skal haldinn árlega að hausti. Til hans skal boða skriflega með 2ja vikna fyrirvara.
Fundurinn er löglegur sé löglega til hans boðað.

Dagskrá aðalfunda:

a. Skýrsla stjórnar
b. Reikningar lagðir fram til samþykktar
c. Lagabreytingar
d. Stjórnarkjör
e. Ákvörðun árgjalds
f. Önnur mál

9) Verði félagið lagt niður ganga sjóðir þess og gögn til Læknafélags Íslands.


10) Lög þessi öðlast þegar gildi og verður einungis breytt á aðalfundi. Til þess nægir einfaldur
meirihluti.


Lög samþykkt 1/2 1994
____________________________
Davíð Gíslason, ritari
Breyting á 2. grein samþykkt 3/12 2010
____________________________
Yrsa Björk Löve, ritari/Sigurveig Þ. Sigurðardóttir formaður


Til baka