Félag íslenskra ofnæmis- og ónæmislækna (FÍOÓL)
ICELANDIC SOCIETY of ALLERGY and CLINICAL IMMUNOLOGY
FÍOÓL var stofnað 1994 og hefur verið starfandi síðan.
Ofnæmislækningar og klínískar ónæmislækningar (Allergy and Clinical Immunology) eru greinar læknisfræðinnar sem byggja á fræðum um starfsemi ónæmiskerfisins og því hvernig truflanir í því leiða til sjúkdóma.
Fagið spannar bæði ofnæmissjúkdóma og raskanir á ónæmissvörun í breiðara samhengi. Í sérgreininni er lögð áhersla á samþættingu grunnvísinda, rannsókna og klínískrar þjónustu við sjúklinga.
Misjafnt er eftir löndum hvaða menntun er í boði.
Í bandaríkjunum eru ofnæmislækningar og klínísk ónæmisfræði 3 ára nám hjá þeim sem hafa lokið annað hvort lyflækningum eða barnalækningum.
Á norðurlöndum er hægt að nema ofnæmislækningar sem viðbótarnám við aðra sérgrein eins og barnalækningar, lyflækningar eða lungnalækningar.
Þannig eru sumir sérfæðingar ofnæmislæknar en aðrir sérfræðingar í ofnæmislækningum og klínískri ónæmisfræði og eru ofnæmis- og ónæmislækningar fléttaðar saman í eina sérgrein vegna skörunar á fræðilegum undirstöðum og sjúklingahópum greinanna. Báðar þessar greinar eru til sem undirsérgreinar við bæði almennar lyflækningar, lungnalækningar og barnalækningar
Ofnæmislækningar beinast að sjúkdómum sem stafa af ofvirkni eða rangri svörun ónæmiskerfisins við áreitum sem almennt eru skaðlaus, svo sem frjókornum, dýraofnæmisvökum, fæðu og lyfjum. Þessi viðbrögð eru oft miðluð af sértækum mótefnum og frumuboðefnum sem leiða til bólgusvars, meðal annars í húð og slímhúðum, meltingarvegi og lungum og í alvarlegum tilvikum til fjölkerfaeinkenna. Áberandi sjúklingahópar í ofnæmislækningum eru einstaklingar með astma, ofnæmiskvef og -tárubólgu (allergic rhinoconjunctivitis) , fæðuofnæmi, lyfjaofnæmi, ofsakláða og ofsabjúg, sem og ofnæmislost. Sérgreinin felur í sér nákvæma greiningu á orsakaþáttum með klínísku mati og sérhæfðum prófum, ásamt markvissri meðferð sem getur falið í sér lyfjameðferð, afnæmingu og meðferð með líftæknilyfjum sem beinast að afmörkuðum þáttum ónæmissvarsins. Markmið meðferðar er að lina einkenni og, ef unnt er, hafa áhrif á undirliggjandi meingerð og þannig breyta sjúkdómsferlinu. Undanfarin ár hefur sjúkdómaflokkur s.k. T2 bólgusvar orðið að einu aðal viðfangsefni sérgreinarinnar þar sem ofnæmis og ónæmissjúkdómar í húð, vélinda, nefi og lungum eiga sameinlega ónæmismeinsvörun. Þetta á við um yfirborðsþekju, frumur, frumuboðefni og svörun við T2 líftæknimeðferð. Þarna er átt við sjúkdóma eins og allergískan og eosinophil astma, þráláta sinusita með sepageri, atopískt exem, rauðkyrnings vélindabólgu auk þinu-ofsakláða (urticaria), angioedema og prurigo nodularis. Stór hluti af bæði fræðistarfi og sjúklingameðferð snýst því núorðið að líftæknimeðferð sem beinist að þessum T2 sjúkdómum sem heyra undir ofnæmislækningar og ónæmisfræði.
Ónæmislækningar eru víðtækari að umfangi og fjalla um bæði ofvirkni og vanvirkni ónæmiskerfisins, sem og truflun á stjórnun þess. Þar undir falla meðfæddir og áunnir ónæmisgallar eins og sjúklingahópar með mótefnaskort sem leiða til endurtekinna eða alvarlegra sýkinga þar sem við getur bætt ónæmissvarið með mótefnagjöf, ýmist í heimagjöf eða á spítala. Aðrir sjúkdómar eins og sjálfsónæmissjúkdómar þar sem ónæmiskerfið ræðst gegn eigin vefjum heyra til klínískrar ónæmisfræði. Í ónæmislækningum eru ýmsir flóknir meðfæddir ónæmisgallar auk galla í frumubundnu ónæmissvarinu, komplímentgallar og blandaðir ónæmisgalla. Sjúklingar með sjálfsónæmissjúkdóma á borð við æðabólgusjúkdóma og þannig heyrir hópur sjúklinga með EGPA- T2 sjúkdómur sem svarar anti-eosinophil líftæknimeðferð (áður Churg Strauss) undir fagið ásamt öðrum rauðkyriningssjúkdómum eins og HES (Hypereosinophil syndrome). Einnig eru aðrir bólgusjúkdóma í bandvef, og sjúklingar með ónæmisfræðilegar afleiðingar líffæraígræðslu eða ónæmisbælandi meðferðar. Ofgnótt frumna í ónæmiskerfnu sem einkennast af sjúkdómum tengdum mastfrumum og rauðkyrnungum eru viðfangsefni þessarar sérgreinar.
Ónæmislækningar byggja á ítarlegri þekkingu á frumugerðum ónæmiskerfisins, boðferlum, erfðafræði og sameindalíffræði og nýta þróaðar rannsóknaraðferðir til að greina truflanir í ónæmissvörun.
Sameiginlegt markmið beggja undirgreina er að veita heildstæða, gagnreynda og einstaklingsmiðaða þjónustu byggða á nýjustu vísindalegri þekkingu. Þróun sértækra mótefna- og líftæknilyfja á síðustu árum hefur undirstrikað mikilvægi fagsins, þar sem meðferð beinist í vaxandi mæli að skilgreindum þáttum ónæmissvarsins fremur en almennri ónæmisbælingu.
Markmið félagsins er að:
Félagið hyggst ná markmiðum sínum með:
Formaður:
Unnur Steina Björnsdóttir usb@landspitali.is og usb@klasinn.is
Varaformaður:
Sigurveig Þóra Sigurðardóttir
Gjaldkeri:
María Ingibjörg Margrétardóttir
Meðstjórnandi:
Benedikt Friðriksson
Meðstjórnandi:
Michael Clausen
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13