Vísinda- og þróunarstyrkir
Vorúthlutun 2024
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu tvisvar á ári. Lögð er áhersla á að styrkja rannsóknir í heimilislækningum, um heimilislækningar og á forsendum heimilislækninganna sjálfra.
Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu.
Umsóknir um vorúthlutun fyrir styrkárið 2024 þurfa að berast sjóðnum fyrir 22. apríl næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.
Umsóknum ber að skila rafrænt til Margrétar Aðalsteinsdóttur (margret@lis.is ), hjá Læknafélagi Íslands, ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða.
Umsóknareyðublað er að finna á innra neti heimasíðu Læknafélagsins, www.lis.is, á heimasvæði FÍH.
Nánari upplýsingar og umsóknarblöð HÉR
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Skrifstofan er opin 9:00-16:00 alla virka daga