Félag um innkirtlafræði (FUI) – Yfirlit og saga 1981–2026
Félag um innkirtlafræði (FUI) var stofnað 1981 af Gunnari Sigurðssyni (formaður), Ástráði B. Hreiðarssyni (ritari) innkirtla-og efnaskiptalæknum og Árna V Þórssyni (gjaldkeri) barnainnkirtlalækni.
Tilgangur félagsins var fyrst og fremst að "stuðla að aukinni fræðslu og skoðanaskiptum á sviði þessarar vaxandi greinar læknsifræðinnar" eins og segir í fundargerð stofnfundar. Stofnfélagar stóðu við þessi markmið og hefur félagið alla tíð verið afar virkt í fræðslu- og fundarhaldi.
Frá stofnun hafa reglulega verið haldnir fræðslufundir og virtum erlendum vísindamönnum boðið til landsins til að flytja erindi á vegum félagsins. Frá árinu 2008 hefur FUI einnig efnt til fræðslufunda í samstarfi við önnur fagfélög, meðal annars Félag íslenskra gigtarlækna, nýrnalækna, heimilislækna, geðlækna og hjartalækna. Þetta samstarf hefur reynst afar farsælt og styrkt þverfaglega nálgun í meðferð innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma.
Félagið hefur staðið fyrir fjölda funda með erlendum fyrirlesurum þar sem meðlimir hafa fengið tækifæri til að kynnast nýjustu þekkingu, skiptast á skoðunum og ræða flókin sjúkratilfelli. Þótt félagið hafi frá árinu 2004 verið skráð sem sérgreinafélag fyrir lækna með sérfræðiviðurkenningu í innkirtla- og efnaskiptalækningum, hefur það frá upphafi verið opið breiðari hópi lækna með áhuga á greininni.
Frá þeim tíma hefur félögum verið skipt í aðalfélaga/aðalmeðlimi og aukafélaga/aukameðlimi. Aukameðlimir koma úr ýmsum sérgreinum en deila áhuga á innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum. Þessi breidd endurspeglast í eðli fræðslufunda félagsins sem miða jafnan að því að höfða til allra félaga.
Félagið er í eðli sínu lítið að umfangi. Árið 2012 voru aðalfélagar 14, þar af fimm barnainnkirtlalæknar og níu lyflæknar með innkirtla- og efnaskiptalækningar sem undirgrein. Árið 2026 eru greiðandi aðalfélagar 16, þar af fjórir barnainnkirtlalæknar og 12 innkirtlalæknar, auk átta greiðandi aukameðlima. Þrír stofnendur félagsins, Gunnar Sigurðsson, Ástráður B. Hreiðarsson og Árni V. Þórsson, voru árið 2012 gerðir að heiðursfélögum.
Stjórn félagsins
Fyrstu tvo áratugina var stjórn félagsins skipuð af stofnendum þess. Árið 2001 urðu fyrstu stjórnarskipti þegar Rafn Benediktsson innkirtlalæknir tók við sem formaður, Ari J. Jóhannesson innkirtlalæknir sem ritari og Gunnar Valtýsson innkirtlalæknir sem gjaldkeri. Þau sátu til ársins 2007, tvö kjörtímabil. Árið 2008 tók við ný stjórn: Kolbeinn Guðmundsson barnainnkirtlalæknir (formaður, 6 ár), Helga Ágústa Sigurjónsdóttir innkirtlalæknir(ritari, 6 ár) og Bolli Þórsson innkirtlalæknir (gjaldkeri, 9 ár) og sátu þau tvö kjörtímabil. Árið 2014 skiptu þau um hlutverk innan stjórnar. Helga Ágústa varð formaður (12 ár) og Kolbeinn ritari (9 ár). Á árunum 2020–2026 urðu frekari breytingar með komu Ragnars Bjarnasonar innkirtlalæknis (gjaldkeri, 6 ár) árið 2020 og Berglindar Jónsdóttur barnainnkirtlalæknis (ritari, 4 ár) árið 2022, til starfa í stjórn.
Árið 2026 var ný stjórn kosin, Margrét Jóna Einarsdóttir innkirtlalæknir formaður, Guðrún Höskuldsdóttir innkirtlalæknir ritari og Sigríður Björnsdóttir innkirtlalæknir gjaldkeri. Yfirlit yfir stjórnir FUI eru því 1981-2026:
1981 Gunnar Sigurðsson (formaður), Ástráður B Hreiðarsson (ritari), Árni V Þórsson (gjaldkeri)
2001 Rafn Benediktsson (formaður), Ari J Jóhannesson (ritari), Gunnar Valtýsson (gjaldkeri)
2008 Kolbeinn Guðmundsson (formaður), Helga Ágústa Sigurjónsdóttir (ritari), Bolli Þórsson (gjaldkeri)
2014 Helga Ágústa Sigurjónsdóttir (formaður), Kolbeinn Guðmundsson (ritari), Bolli Þórsson (gjaldkeri)
2020 Helga Ágústa Sigurjónsdóttir (formaður), Kolbeinn Guðmundsson (ritari), Ragnar Bjarnason (gjaldkeri)
2022 Helga Ágústa Sigurjónsdóttir (formaður), Berglind Jónsdóttir (ritari), Ragnar Bjarnason (gjaldkeri)
2026 Margrét Jóna Einarsdóttir (formaður), Guðrún Höskuldsdóttir (ritari), Sigríður Björnsdóttir (gjaldkeri)
Þverfaglegt eðli og framtíð sérgreinarinnar
Innkirtla- og efnaskiptalækningar eru í eðli sínu þverfagleg sérgrein. Einkenni sjúkdómanna eru oft margslungin og meðferð þeirra krefst samvinnu fjölmargra sérgreina. Þetta skýrir breiðan félagsbakgrunn FUI.
Þótt margir sjúkdómar innan greinarinnar séu sjaldgæfir, fer hluti þeirra vaxandi, þar á meðal áunnin sykursýki, offita og frumkomið aldósterónheilkenni (FA). Árið 2026 er ljóst að FA er afar vangreint þrátt fyrir að vera algengasta þekkta orsök hækkaðs blóðþrýstings á heimsvísu. Þessir sjúkdómar munu án efa skipa stóran sess í starfi sérgreinarinnar í framtíðinni.
Samvinna barna- og fullorðins innkirtlalækna
Einstakt og farsælt samstarf barnainnkirtlalækna og þeirra sem sinna fullorðnum hefur einkennt starf FUI frá upphafi. Þetta samstarf hefur vakið athygli erlendis og er sérstaklega mikilvægt við yfirfærslu sjúklinga úr barnalækningum yfir í meðferð fullorðinna („transition“), sem hefur gengið einstaklega vel hér á landi.
Menntun, vísindi og alþjóðlegt samstarf
Allir íslenskir innkirtlalæknar hafa sótt sitt framhaldsnám erlendis, meðal annars til Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Bretlands og verið þar í skemmri eða lengri tíma að námi loknu:
Arna Guðmundsóttir, Ari J Jóhannesson, Gunnar Valtýsson, Árni V Þórsson og Soffía G Jónasdóttir í Bandaríkjunum, Bolli Þórsson, Guðni Guðnason, Guðrún Höskuldsdóttir, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, Páll Pálsson, Sigríður Bára Fjalldal, Steinunn Arnardóttir, Berglind Jónsdóttir og Ragnar Bjarnason í Svíþjóð og Rafn Benediktsson og Tómas Ágústsson í Bretlandi.
Læknar sérgreinarinnar hafa margir hverjir unnið vísindavinnu samhliða læknastarfinu og um árabil hefur Hjartavernd komið að starfi félagsins með fjölbreyttri vísindavinnu og lagt mikið efni til mikilvægra rannsókna og funda félagsins. Í þessu samhengi er vert að nefna digra aðkomu Vilmundar Guðnasonar forstjóra Hjartaverndar ásamt Bolla Þórssyni og Thor Aspelund.
Félagið var aðildarfélag að Icelandic Danish Diabetes Club (IDDC) , sem Ástráður B Hreiðarson og Kjeld Hermansen stofnuðu er Ástráður flutti til Íslands eftir sitt framhaldsnám í Danmörk. IDDC hélt árlega fundi, fyrst í París en síðan til skiptist á Íslandi og í Danmörk. Allir þeir sem tóku þátt í þessu félagi fluttu fyrirlestra sem voru á heimsvísu og íslenskir læknar nutu þar aðkomu vísindastarfsemi Hjartaverndar meðal annars, auk þess að fá fræðslu frá dönsku starfsfélögunum sem allir hafa skipað sterkan grunn að vísindastarfsemi í sykursýki á heimsmælikvarða. Íslenskir innkirtlalæknar hafa því um áraraðir notið fyrirlestra frá helstu vísindamönnum í sykursýki sem nú starfa meðal annars á Steno klíníkinni og meðal annars dr. Jens Juul Holst sem uppgötvaði GLP-1 sem seinna leiddi til uppgötvunar semaglutids sem hefur valdið straumhvörfum í meðferð sykursýki og offitu. Eftir að Ástráður og Kjell luku störfum voru haldnir nokkrir fundir sem yngri innkirtlalæknar stóðu að bæði á Íslandi og í Danmörk. Félagið lagðist niður við heimsfaraldur Covid-19 árið 2020 meðal annars vegna erfiðleika við að afla styrkja fyrir fundina.
Félagið er einnig aðildarfélag að Scandinavian Society for the Study of Diabetes (SSSD) sem var stofnað 1966. Fundir félagsins eru haldnir til skiptis í Danmörk, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi. Þar er norrænum vísindamönnum ungum sem eldri gefið tækifæri til að kynna sín vísindaverkefni og hafa margir ungir vísindamenn haldið sín fyrstu erindi á þessum fundum. Á fundunum er virtum vísindamönnum, ungum sem eldri veittar viðurkenningar fyrir vísindavinnu sína og veittir styrkir í því samhengi. Fundurinn var fyrst haldinn á Íslandi 2006, þá 2011, 2016, 2022 og verður aftur á Íslandi á vegum FUI árið 2027. Stjórn FUI hefur átt veg og vanda að þessum fundum í gegn um árin með aðstoð annarra meðlima innan félagsins.
Auk þessa hefur félagið verið aðildarfélag að evrópska innkirtlafélaginu, European Society of Endocrinology, til fjölda ára og á þar rödd að málum eins og önnur innkirtlafélög innan Evrópu.
Vísindavinna er grunnur að framförum í sérgreininni eins og allri læknisfræði og mikilvægt að íslenskir innkirtlalæknar haldi áfram á þeirri braut. Margir af læknum sérgreinarinnar á Íslandi eru með doktorspróf og árið 2024 var fyrsta doktorsvörn læknis með vísindaverkefni innan sérgreinarinnar varið við Læknadeild, Háskóla Íslands. Önnur doktorsvörn læknis innan sérgreinarinnar var árið 2025. Vonandi er það bara byrjunin á áframhaldandi farsælu vísindastarfi innan sérgreinarinnar við Háskóla Íslands.
Fræðslufundir og málþing
Frá árinu 2008 hefur FUI staðið fyrir yfir 40 fundum auk ráðstefnuhalda SSSD og IDDC. Málþing á Læknadögum frá árinu 2008 - 2026 hafa verið 6 og sérlegir hátíðarkvöldfundir fyrir félagsmenn með erlendu fyrirlesurunum, tengdum þeim við nokkur tilfelli. Fræðslufundir frá árinu 2008 - 2026 hafa verið 31. Frá árinu 2019 hafa verið haldnir 6 sjúkratilfellafundir, þar sem flókin tilfelli hafa verið rædd varðandi greiningu og meðferð ásamt fræðílegum erindum. Sérstakan sess skipar Heiðursmannafundur árið 2012 - þar sem stofnendur félagsins voru kvaddir við hátíðlega athöfn með heilsdags málþingi á Hótel Lofleiðum með 80 gestum. Til málþingsins fékk hver þeirra að velja sér erlendan fyrirlesara sem mest höfðaði til þeirra sem FUI bauð síðan á málþingið. Heiðursræður voru haldnar um feril hvers og eins.
Félagið hefur á þessum tíma haldið 6 svo kallaða "Neuroendocrine meeting" sem haldnir hafa verið utan Reykjavíkur frá hádegi á föstudegi til hádegis á laugardegi, með aðkomu innboðinna erlendra og innlendra sérfræðinga til að ræða heiladingulssjúkdóma og fá ráð við flóknum sjúkratilfellum. Heila-og taugaskurðlæknar hafa verið með á þessum fundum auk röntgenlæknis sérhæfðum í heiladingulssjúkdómum sem sýnt hefur þær myndir sem við hefur átt. Þetta hafa verið einstakir fundir sem hafa gefið félagsmönnum mikið og styrkt tengsl félagsins út á við, bæði innan og utan lands.
Félagið hefur frá árinu 2008 boðið inn 25 erlendum fyrirlesurum auk allra innlenndra gesta, og haldið sína fundi í samvinnu við önnur félög eins og áður er nefnt. Erlendir fyrirlesarar innboðnir á SSSD og IDDC hafa verið margir auk þeirra 25 sem nefndir hafa verið.
Árið 2026 spannar saga FUI 45 ár. Hún er saga virks fræðslustarfs, öflugrar samvinnu og sífelldrar þróunar í þágu innkirtla- og efnaskiptalækninga á Íslandi
Ritað 27.apríl 2026 af: Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
Heimildir:
Gunnar Sigurðsson prófessor emeritus
Kolbeinn Guðmundsson. Sérgrein. Frá innkirtlafélaginu. Læknablaðið 05.tbl.98.árg.2012
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13