1. gr.
Félagið heitir Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna (FÍFK).
2. gr. a.
Félagar í FÍFK geta orðið þeir sem hafa hlotið sérfræðiréttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Einnig geta þeir sem stunda sérnám í greininni hér á landi orðið félagar og greiða þeir hálft árgjald.
FÍFK er aðildarfélag NFOG og NFYOG.
Félagsmenn greiða félagsgjald sem rennur í félagssjóð. Félagssjóði er ætlað að standa straum af rekstri félagsins.
Greiði gjaldskyldur félagi ekki árgjald sitt er stjórn FÍFK heimilt að svipta hann félags réttindum uns hann hefur greitt gjaldið enda hafi hann fengið að minnsta kosti eina aðvörun um útistandandi reikning. Við það fellur félagsaðild hans niður og tilkynnir stjórnin honum það skriflega.
2. gr. b.
Við 67 ára aldur fellur niður gjaldskylda í félagið og meðlimur verður heiðursfélagi.
3. gr.
Tilgangur félagsins er að vinna að sameiginlegum hagsmunum er varða fæðinga- og kvensjúkdómalækningar á Íslandi, að efla faglega þekkingu og vísindaáhuga og hvetja til aukinna rannsókna og menntunar félagsmanna. Þá skal félagið vera umsagnaraðili í faglegum málum er tengjast greininni og ráðgjafi heilbrigðisyfirvalda. Einnig skal félagið gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart heilbrigðisyfirvöldum. Félaginu ber að hafa fagleg samskipti við sambærileg erlend félög.
4. gr.
Stjórn skal skipuð formanni, gjaldkera, ritara, meðstjórnanda og fulltrúa sérnámslækna. Formaður er kosinn til tveggja ára með möguleika á endurkjöri eitt ár í senn. Fulltrúar sérnámslækna skulu kosnir til eins árs. Kjósa skal einn sérnámslækni í stjórn og annan sem varamann. Báðir fulltrúar sérnámslækna sitja í NFYOG. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára með möguleika á endurkjöri. Stjórnin skiptir með sér verkum.
5. gr.
Á aðalfundi skal kosið í starfandi nefndir til 2 ára í senn. Stjórn og félagsfundi er heimilt að skipa í nýjar nefndir milli aðalfunda.
6. gr.
Aðalfund félagsins skal halda ár hvert að vori og skal eftirfarandi tekið fyrir:
a. skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár
b. endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar
c. skýrslur nefnda
d. lagabreytingar
e. kosning stjórnar
f. kosnir skoðunarmenn
g. árgjald ákveðið
h. kosning nefnda og fulltrúa
i. önnur mál
Tillögur að lagabreytingum skal senda formanni minnst 3 vikum fyrir aðalfund og þær kynntar í fundarboði, sem skal senda út með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Lögum má einungis breyta á aðalfundi og því aðeins að helmingur gjaldskyldra félaga sé á fundi og 2/3 þeirra greiði breytingum atkvæði. Uppfylli aðalfundur ekki skilyrði til lagabreytinga, skal boða til framhaldsaðalfundar innan hálfs mánaðar. Sá aðalfundur er ætíð lögmætur og ræður afl atkvæða.
7. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Læknafélag Íslands
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur - lis@lis.is
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga 9-16
Föstudaga 9-13