Aðalfundur FAL 2026

Heil og sæl félagar í FAL

Aðalfundur FALverður haldinn fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi (frí daginn eftir) og hvetjum við öll til þess að mæta. Fundurinn verður haldinn á Röntgen bar (efri hæð) og byrjar kl. 19:30. Rautt, hvítt, bjór og áfengislaust verður í boði án endurgjalds.

Vakin er sérstök athygli á því að kosið verður um 8 sæti í stjórn FAL. Hvetjum við öll til að bjóða sig fram.

Framboðsfrestur er til og með viku fyrir aðalfund eða til kl. 19:30 fimmtudaginn 23. apríl n.k. Þau embætti sem kosið verður um eru eftirfarandi:

Formaður
Varaformaður
Gjaldkeri
Fulltrúi FAL í stjórn LÍ
Ritari
Þrír meðstjórnendur

Senda má tilkynningu um framboð til stjórnar á:
helga.thorsdottir29@gmail.com

Á fundinum verður einnig kosið um lagabreytingatillögur og ályktanir ef einhverjar verða.

Dagskrá aðalfundarins verður:

a) Skýrsla stjórnar FAL fyrir liðið starfsár.

b) Endurskoðaðir reikningar FAL fyrir liðið reikningsár með athugasemdum skoðunarmanna.

c) Stjórnarkjör. Hlutkesti ræður ef atkvæði eru jöfn.

d) Kynning aðalfundar LÍ og auglýst eftir aðal- og varafulltrúum FAL á aðalfundi LÍ.

e) Kosning annars tveggja fulltrúa FAL í stjórn LÍ.

f) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins varamanns.

g) Ákvörðun árgjalds félagsmanna fyrir næsta starfsár og fjárhagsáætlun.

h) Lagabreytingatillögur, ef borist hafa og tillögur til ályktana.

i) Önnur mál.

Frestur til að leggja fram lagabreytingatillögur er til kl. 19:30 fimmtudaginn 16. apríl n.k.

Bestu kveðjur,

Stjórn FAL


Til baka