Fundargerð 10.11.2016

Orðanefnd læknafélaganna 

Fundur var haldinn að Laugavegi 13, Reykjavík, þann 10. nóvember 2016 kl. 10:00, en þetta var 47. fundur nefndarinnar.

Mættir voru Jóhann Heiðar Jóhannsson, formaður nefndarinnar, Eyjólfur Þ. Haraldsson og Magnús Jóhannsson, en sá síðastnefndi ritaði fundargerð.  Einnig sat fundinn Ágústa Þorbergsdóttir, deildarstjóri hjá Stofnun Árna Magnússonar.

 

  1. Fundargerð síðasta fundar
    Fundargerð síðasta fundar (27. október 2016) var samþykkt.
  2. Orðabókarvinnan
    Unnið var með lista sem inniheldur „smit“ og skyld heiti (samtals 45 færslur). Nefndarmenn höfðu farið yfir listann fyrir fundinn og merkt við þau orð sem ræða þyrfti. Nokkrar breytingar og viðbætur voru gerðar og listinn hafði verið lesinn yfir af sérfræðingi á þessu sviði. Sérfræðingurinn hafði bætt við 5 heitum sem voru yfirfarin á fundinum.
    Annar sérfræðingur hafði sent nefndinni 4 heiti sem innihalda „stroke“ og voru þau einnig yfirfarin á fundinum.
    JHJ mun ganga frá hugtökunum í Orðabankanum og ÁÞ annast birtingu þeirra.
  3. Næsti fundur
    Næsti fundur er fyrirhugaður fimmtudaginn 15. desember. JHJ mun boða þann fund og senda út orðalista til yfirlestrar.

Fundi var slitið um kl. 11:00.