Fréttabréf formanns

Fundir öldungadeildar

Ágætu öldungar

Vegna fjöldatakmarkana af völdum Covid hafa allir fundir öldungadeildar frá og með apríl 2020 fallið niður. Þar sem nú mega 50 koma saman ef gætt er að 1 metra millibili ef um óskylda aðila er að ræða og grímuskylda virt, hefur verið ákveðið hefja fundastarfið á ný.

Næsti fundur Öldungadeildar verður því haldinn miðvikudaginn 3. mars 2021 .

Þá munu EiríkurJónsson þvagfæraskurðlæknir og Jón Torfason sagnfræðingur, flytja erindi sem þeir nefna „Saga af sulli "umfjöllun um sullaveiki "



Með kveðju,

Kristófer

 

 

=========================================================

 

Kristófer Þorleifsson, læknir

 

Urðarhæð 6, 210 Garðabæ

 

Formaður Öldungadeildar

 

Heimasími 5641658 og farsími 8245271

 

kristofert@simnet.is


=========================================================

Um fundi Öldungadeildar.


Allir læknar sem náð hafa sextugsaldri eru velkomnir í okkar hóp samkvæmt lögum Öldungadeildar Læknafélags Íslands. Vonumst við til að sjá sem flesta á fundum okkar, bæði verðandi félaga og skráða félaga í deildinni. Fundirnir eru haldnir kl. 16.00 fyrsta miðvikudag hvers mánaðar að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi. Hálftíma fyrir fund er boðið upp á kaffi og meðlæti meðan félagar og gestir ræða saman og rifja upp gömlu góðu dagana.



 


Til baka