Athugasemd frá LÍ

30.01 2012

Athugasemd frá LÍ

Vegna fréttar um PIP brjóstapúða fyrr í kvöld og viðtals við formann velferðarnefndar vill Læknafélag Íslands koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum, þar sem í fréttinni koma fram bæði misvísandi og villandi upplýsingar:

1. Læknafélag Íslands hefur ekki og hefur ekki haft undir höndum lista yfir sjúklinga, þar með talið konur sem farið hafa í brjóstastækkunaraðgerðir, og getur því ekki ákveðið að láta slíka lista af hendi til landlæknis.


2. Lýtalæknir sá sem notaði PIP-brjóstapúðanna hefur þegar látið senda bréf til þeirra kvenna sem gengist hafa undir brjóstastækkunaraðgerð með PIP púðum hjá honum. Hann lét senda konunum bréf velferðarráðuneytisins um viðbrögð yfirvalda, m.a. um ómskoðun. Allar konur með þekkt heimilisfang, sem fengið hafa ígrædda PIP púða eiga því að vera búnar að fá bréf, bæði frá viðkomandi lýtalækni og frá velferðarráðuneytinu. 


3. Lýtalæknar hafa leitað ráðgjafar hjá Læknafélagi Íslands vegna kröfu embættis landlæknis um afhendingu persónugreinanlegra upplýsinga, sem lagaleg óvissa er um hvort lýtalæknum sé heimilt að veita. Þessi lögfræðilegu álitaefni voru rædd á fundi með landlækni 24. janúar sl. Það var skilningur Læknafélags Íslands að landlæknir hefði skilning á því að lýtalæknar vildu vera vissir um að þeim væri heimilt að veita þessar upplýsingar. Erindi Læknafélags Íslands fyrir hönd lýtalækna er í eðlilegum farvegi hjá Persónuvernd.


4. Læknar bera ábyrgð á sjúkraskrám og þeim ber lögum samkvæmt að meta hvort krafa stjórnvalda um upplýsingagjöf standist lagaákvæði. Ef læknar veita stjórnvöldum viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar í trássi við lög þá eiga þeir refsi- og bótaábyrgð  yfir höfði sér, en ekki stjórnvöld sem óskuðu eftir upplýsingunum.


5. Læknafélag Íslands hefur óskað eftir aðkomu Persónuverndar að þessu máli enda er það hagur allra að ekki sé verið að veita víðtækari persónugreinanlegar upplýsingar en heimilt lögum samkvæmt að veita. 





Leita