Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hætta útgáfu lyfjaskírteina á pappír 10.febrúar 2012
Um áramótin náðist stór áfangi í rafrænum samskiptum SÍ við apótek. Þá tengdust síðustu apótek landsins við réttindakerfi SÍ. Með þessu hafa öll apótek nú aðgang að upplýsingum um réttindi einstaklinga þegar lyfseðill er afgreiddur, m.a. hvort einstaklingur er sjúkratryggður og/eða hafi lyfjaskírteini auk annarra réttinda. Lyfjaskírteini á pappír eru því óþörf og verða ekki send út til einstaklinga frá og með 10.febrúar n.k.
Í Réttindagátt (mínar síður á
www.sjukra.is) geta einstaklingar fengið upplýsingar um afgreiðslu lyfjaskírteina.