Meðal dagskrárliða á Læknadögum 2012 var málþing sem nefnt var Fjölbreytileiki einhverfurófsins.
Aðalfyrirlesarinn á málþinginu var Fred R. Volkmar, prófessor við Yale læknaskólann í Bandaríkjunum. Hann flutti tvö erindi, annars vegar: The Changing Face of Autism: An Introduction and Overview, hins vegar: Understanding Autism: Implications for health Care Professionals.
Í erindunum skýrði hann m.a. frá rannsókn sem fjallaði um breytingar tengdum greiningarskilmerkjum fyrir röskun á einhverfurófi í DSM-V.
Bandaríska dagblaðið New York Times frétti af þeim niðurstöðum sem Volmar kynnti á Læknadögum fimmtudaginn 19. janúar sl. og birti um það forsíðufrétt strax næsta dag. Greinin um rannsókn Volkmars er ekki enn birt en gert er ráð fyrir að svo verði í mars/apríl nk.
Frásögn NYT af erindi Volkmars er að finna
HÉR Svo virðist sem frétt NYT hafi valdið nokkrum óróa og er talsvert um að athugasemdir séu skráðar við umfjöllunina, eins og sjá mér
HÉR