Gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 5,3% um næstu áramót í

samræmi við áætlun fjárlaga um hækkun sértekna stofnana og þar með vegna verðlags- og gengisbreytinga. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt.
Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að sértekjur stofnana hækki að jafnaði um 5,3%. Er þá gert ráð fyrir leiðréttingu vegna vanmats á verðlagsbreytingum í forsendum fjárlaga þessa árs og spá um 3,7% hækkun vísitölu neysluverðs árið 2012. Þann 1. janúar næstkomandi taka gildi breytingar á gjaldskrám fyrir heilbrigðisþjónustu til samræmis við þetta. Helstu ákvarðanir um gjaldskrár ársins 2012 eru þessar:
• Heilsugæsla: Þrátt fyrir að gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu hækki að jafnaði um 5,32% verða komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjöld fyrir vitjanir heilsugæslulækna óbreytt. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert fyrir komu á heilsugæslustöð líkt og verið hefur. Með þessu er lögð áhersla á mikilvægi heilsugæslunnar á sviði grunnþjónustu og sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.
• Sjúkra- iðju- og talþjálfun: Kostnaður sjúklinga fyrir þjálfun sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um þrjú prósentustig fyrir fyrstu 30 skiptin hjá þjálfara. Kostnaður vegna meðferðar sem samþykki hefur verið veitt fyrir umfram 30 skipti hækkar ekki frá því sem nú er.
• Sjúkraflutningar: Gjald fyrir sjúkraflutninga þeirra sem eru sjúkratryggðir hækkar um 7,2%, úr 5.130 kr. í 5.500 kr. (ath. þó um kostnað þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir hér að neðan). Þurfi sjúklingur sem liggur á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun á sjúkraflutningi að halda greiðir viðkomandi stofnun fyrir flutninginn.
• Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar: Hlutur sjúklinga vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands hækkar um 5,32%.
• Lyfjakostnaður: Greiðsluþátttaka sjúklinga í kostnaði vegna lyfja sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um 5,32%.
• Kostnaður þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir: Almennt munu greiðslur þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir hækka um 5,32% fyrir heilbrigðisþjónustu frá áramótum. Þetta á þó ekki við um kostnað þeirra vegna sjúkraflutninga sem færist nær raunkostnaði. Fyrir hverja byrjaða klukkustund hækkar gjaldið úr 8.800 krónum í 35.000 kr. Gjald til eiganda sjúkrabifreiðar (Rauða kross Íslands) hækkar úr 660 krónum í 2.000 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra en sjúklingur greiðir alltaf að lágmarki fyrir 15 kílómetra.
Frétt af vef Velferðarráðuneytisins 22.12.2011