Stefnumörkun CPME um reykingar í nærveru barna

16.12 2011

Stefnumörkun CPME um reykingar í nærveru barna


Á stjórnarfundi CPME (Standing Committee of European Doctors) hinn 26. nóvember sl. var samþykkt stefnumörkun um reykingar í nærveru barna. Skýrt er frá þessari stefnumörkun í nýútkomnu fréttabréfi CPME. Í stefnumörkuninni kemur m.a. fram að CPME hefur ítrekað lýst því yfir að með rannsóknum hafi verið sönnuð áhættutengsl milli reykinga annars vegar og fjölmargra sjúkdóma og ótímabærra dauðsfalla hins vegar. Vegna þessa hefur CPME samþykkt fjölmargar yfirlýsingar og áréttar nefndin enn einu sinni aðgerðir sínar og yfirlýsingar gegn tóbaki.

 

CPME bendir á að nokkur árangur hafi náðst í því að takmarka reykingar á opinberum stöðum. Reykingum í heimahúsum og bifreiðum hafi á hinn bóginn minni gaumur verið gefinn. Þó virða beri frelsi einstaklinga að þessu leyti geri löggjöf ráð fyrir að jafnvel þessu frelsi einstaklinga séu takmörk sett, ekki síst vegna hagsmuna annarra. Af reykingum í heimahúsum getur stafað ógn, ekki síst af reykingum í návist barna, að hagmunir annarra kalli á að þetta frelsi þurfi að takmarka. Í stefnumörkun CPME kemur fram að börn þurfa ítrekað að þola það að foreldrar, fjölskyldumeðlimir eða vinir reykja. Rannsóknir hafi staðfest að fóstur í móðurkviði og börn séu viðkvæmust allra fyrir óbeinum reykingum og að óbeinar reykingar séu þekktur áhættuþáttur þegar kemur að lágri fæðingarþyngd, vöggudauða, astma, hjartasjúkdómum og krabbameini. Þá auki reykingar á heimili barna líkurnar á því að börnin sjálf verði síðar reykingamenn.

 

CPME leggur áherslu á að þetta séu upplýsingar sem koma þurfi sem víðast á framfæri og leggur áherslu á réttindi hvers barns til að lifa og alast upp í reyklausu umhverfi. Til að unnt sé að tryggja börnum slíkt umhverfi telur CPME að varanleg breyting á hugarfari almennings til reykinga á návist barna þurfi að koma til. Breyta þurfi viðhorfi almennings þannig að það verði ekki lengur liðið að reykt sé í návist barnshafandi kvenna og barna. Búa þurfi til virkan samfélagsþrýsting gegn slíkri háttsemi. Það taki tíma að breyta viðhorfi samfélaga að þessu leyti og viðhorfsbreytinguna þurfi að meta með hlutlausum hætti. Í þeim tilvikum að aukin upplýsingagjöf um afleiðingar reykinga í viðurvist barna og barnshafandi kvenna ber ekki árangur og ekki tekst að fá stuðning við að líða ekki slíka háttsemi styður CPME að gripið verði til frekari aðgerða sem letja til reykinga í návist barna og barnshafandi kvenna. Slík ákvæði þurfi að styrkja með löggjöf sem bannar að ólögráða börnum sé selt eða boðið tóbak.

 

Á tóbaksvarnaþingi LÍ 2011 og síðasta aðalfundi LÍ voru samþykktar ályktanir þar sem lýst er stuðningi við þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun um tóbaksvarnir. Þar er m.a. gert ráð fyrir að bannaðar verði reykingar í bílum, sem í eru börn undir 18 ára aldri. Sýnast slíkar aðgerðir í samræmi við framangreinda stefnumörkun CPME.

 


Fréttabréf CPME

 


Stefnumörkun CPME gegn reykingum í návist barna

 






Leita