Læknadagar fá EACCME viðurkenningu

08.12 2011

Læknadagar fá EACCME viðurkenningu

European Accreditation Council for Continuing Medical Education (EACCME®) hefur veitt Læknadögum EACCME® viðurkenningu. Bréf, sem staðfesti þessa viðurkenningu, barst Læknafélagi Íslands í dag. Læknadögum eru veittar allt að 30 CME einingar (ECMEC – European Continuing Medical Education Credits), sem er hámarks einingafjöldi fyrir 5 daga ráðstefnu. Símenntunar- og vísindalegt gildi Læknadaga hefur með því fengið eftirsótta alþjóðlega viðurkenningu.

Viðurkenningin er mikilvæg öllum læknum sem taka þátt í Læknadögum. Hún hefur það í för með sér að læknar fá að Læknadögum loknum í hendur skírteini til staðfestingar því að þeir hafi sótt atburði, sem metnir eru til allt að 30 ECMEC. Slík skírteini eru viðurkennd bæði í Evrópu og Bandaríkjunum sem staðfesting á símenntun lækna, en EACCME® hefur gert samkomulag við bandaríska læknafélagið (AMA) um gagnkvæma viðurkenningu þess að ein ECMEC er sæmbærileg við AMA PRA Category 1 Credit™ og öfugt.

Viðurkenningin er því Læknafélagi Íslands og Fræðslustofnun lækna sérstakt fagnaðarefni.

 




Leita