Áhyggjur vegna falsaðra lyfja í umferð í Mið- og Suðaustur Evrópu

24.11 2011

Áhyggjur vegna falsaðra lyfja í umferð í Mið- og Suðaustur Evrópu

WMA í samvinnu við Alþjóðasamband heilbrigðisstarfsmanna (WHPA) stóð fyrir svæðisfundi dagana 21. og 22. nóvember sl. í Prag þar sem fjallað var um baráttu gegn fölsuðum lyfjum.

Fundurinn er liður í baráttu WMA gegn fölsuðum lyfjum, sem rekin er undir yfirskriftinni „Be Aware, Take Action“. Á fundinum var samþykkt yfirlýsing þar sem hvatt er til þess að draga úr hættulegum afleiðingum falsaðra lyfja á sjúklinga og almenning. Með yfirlýsingunni eru forystumenn heilbrigðisstétta að auka viðbrögð sín við þessa alvarlegu hótun við öryggi sjúklinga og þar er kallað eftir því að ríkisstjórnir á svæðinu geri hið sama. Í sumar samþykkti Evrópusambandið nýja tilskipun á sviði lyfjamála, nr. 2011/62/EU. sem breytir nokkrum eldri tilskipunum og er m.a. er ætlað að bregðast við þessum vanda. Ákvæði tilskipunarinnar taka gildi 2. janúar 2013.

 

Fréttatilkynning, þar sem nánar er sagt frá fundinumer HÉR

Yfirlýsingin, sem samþykkt var á fundinum er HÉR

 

Glærur af fundinum má nálgast HÉR





Leita