Á fundi, sem haldinn var 7. nóvember 2011 samþykkti CPME (Comité Permanent des Médicins Européens, Standing Committee of European Doctors) ásamt fjölmörgum öðrum Verkáætlun um virk og heilbrigð elliár (Active and Healthy Ageing). Markmið áætlunarinnar er að fyrir árið 2020 bætist tvö heilbrigð og virk ár við ævi íbúa Evrópu. Þrjú markmið eru tilgreind í áætluninni, sem eru: (A) forvarnir, skimun og snemmgreining, (b) umönnun og lækning og (C) virk elliár og sjálfstæð búseta.
Í tilefni af samþykktinni sagði forseti CPME, dr. Konstanty Radziwill:
„The CPME welcomes the adoption of the Strategic Implementation Plan on Active and Healthy Aging and as a member of the Steering Group that delivered this plan, I welcome inter–DG cooperation and encourage future European Innovation Partnerships. Both the Strategic and the Operational aspects of the implementation plan should provide an impetus for more horizontal cooperation that is effective. All Steering Group members are accountable for this decision and should deliver on the promise to be good ambassadors of active and healthy ageing as well as contribute to adding two extra active and healthy life years by 2020. Older people and their contribution to society is a value that the general public should be made aware of and keep in high esteem. European doctors are happy to contribute to this ambitious plan."
Um áætlunina má lesa nánar
HÉR Þá hefur CPME ásamt Evrópusamtökum arkitekta, tannlækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, dýralækna og lyfjafræðinga sent frá sér yfirlýsingu vegna endurskoðunar tilskipunar 2005/36/EC um viðurkenningu starfsleyfa. Í yfirlýsingunni hvetja starfsgreinafélögin til þess að við endurskoðunina verði gætt að öryggi og gæðum þeirra þjónustu sem þessar starfsgreinar veita. Þá er hvatt til þess að sjálfvirkni í viðurkenningu starfsleyfa milli landa verði takmörkuð við þá sem hafa að öllu leyti lokið námi sem stenst lágmarkskröfur tilskipunarinnar. Varað er við því að opnað verði fyrir möguleika á því að hægt verði að fá staðfestingu skv. tilskipuninni í þeim tilvikum þegar lágmarkskröfum er ekki fullnægt. Ef fyrir það verði opnað sé hætt við því að gæði menntunar þessara starfsstétta minnki með ófyrirséðum afleiðingum fyrir almenning. Hvatt er til að áfram verði tilgreint í tilskipuninni hvaða lágmarksmenntunarkröfur þurfi að fullnægja til að starfsleyfi séu sjálfkrafa viðurkennd milli landa.
Yfirlýsingin í heild sinni er aðgengileg
HÉR
Unnið upp úr fréttatilkynningu frá CPME dags. 7. nóvember 2011 og tölvupósti frá CPME dags. 8. nóvember 2011.