Í nýjum þverfaglegum námsvísi, sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) gaf út í lok október, kemur fram að nám í öryggi sjúklinga þurfi að bæta svo unnt sé að til að efla öryggi heilbrigðisþjónustu.
Námsvísinum er ætlað að styðja við háskólakennslu og þjálfun varðandi öryggi sjúklinga í námi í læknisfræði, tannlækningum, hjúkrunarfræði, ljósmæðrafræði og lyfjafræði. Námsvísirinn hvetur einnig til þess að öryggi sjúklinga sem meðal þess sem nemendum í heilbrigðisgreinum er kennt. Námsvísirinn er í tveimur hlutum. A-hlutinn er leiðarvísir til kennara. B-hlutinn gefur alhliða námskeið sem hægt er að nota að öllu eða að hluta. Námsefni, sem fjallað er um eru m.a. hvað sé öryggi sjúklinga, mikilvægi mannlegra þátta í öryggi sjúklinga, skilningur og stjórnun meðferðaráhættu og sýkingavarnir.
Hægt er að kynna sér námsvísinn
HÉR
Kennsluefni sem tengist námsvísinum má nálgast
HÉR
Unnið úr fréttabréfi WHO um öryggi sjúklínga, októberblaði 2011.