Ársfundur WMA

28.10 2011

Ársfundur WMA

Ársfundur Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association - WMA) var haldinn í Montevídeó, Úrúgvæ, dagana 12. – 15. október sl. Fulltrúar frá u.þ.b. 50 læknafélögum um allan heim sóttu fundinn,

þ.á m. Birna Jónsdóttir formaður LÍ og Jón Snædal fv. formaður WMA og formaður Siðfræðiráðs LÍ.

 

Fundurinn fagnaði því að yfir 100 landsfélög lækna eru nú aðilar að WMA og hafa aldrei verið fleiri.

 


 Meðal þess sem fjallað var um á fundinum var:

 

1.    Sjálfstæði læknafélaga. Fundurinn fordæmdi tilraunir sumra ríkisstjórna til að þagga niður í læknafélögum. Fundurinn krefst  þess að ríkisstjórnir skipti sér ekki af sjálfstæðri starfsemi landsamtaka lækna og hvetur ríkisstjórnir til að vinna með læknum til að efla heilsu manna.

 

2.    Tóbak og börn. Fram kom á fundinum að u.þ.b. 700 milljónir barna, eða helmingur allra barna í heiminum, andi að sér tóbaksmenguðu lofti, einkum inn á heimilum. Þessi staðreynd kalli á markvissari aðgerðir til að vernda börn fyrir afleiðingum reykinga, s.s. að tryggja börnum reyklaust umhverfi og að beina sjónum að foreldrum sem reykja. Fundurinn ítrekaði fyrri stefnumörkum WMA um bann við sölu, dreifingu og aðgengi að tóbaki og tóbaksvörum fyrir börn og unglinga. Þá ítrekaði fundurinn bann við framleiðslu, dreifingu og sölu sælgætis sem hermir eftir eða líkist tóbaksvörum. Þá krafðist fundurinn þess að bann yrði lagt á framleiðslu og sölu svokallaðra rafsígarettna. Telur fundurinn að bann við framleiðslu og sölu þessarar vöru eigi að gilda þar til búið sé að rannsaka og prófa hana og setja um hana reglur sem annað hvort nýja tegund tóbaksvöru eða sem tækis sem gefi frá sér lyf. Fundurinn varaði sérstaklega við markaðssetningu gagnvart börnum ekki síst þegar jarðarberjabragði eða súkkulaðibragði væri bætt við rafsígaretturnar.

 

3.    Viðbrögð við hamförum. Fundurinn samþykkti að WMA ætti að vera lykilaðili samskipta milli landsfélaga lækna þegar hamfarir verða. Ný ályktun um viðbúnað við hamförum og viðbrögð lækna var samþykkt og nefnd Montevídeó-yfirlýsingin. Fram kom í máli forseta WMA að samtökin vilji sjá aukna samfellu í þjálfunarprógrömmum vegna hamfara og meiri upplýsingaskipti milli læknafélaga.

 

4.    Læknar í tryggðarklemmu (e. dual loyalities). Fundurinn samþykkti þróun nýs tilkynningakerfis sem gefur færi á því að skoða nánar tilvik sem snúa að læknum og pyntingum. Ákveðið var að WMA styddi lækna sem eru t.d. í þeirri stöðu að starfa í herjum eða í fangelsum og sem eru undir þrýstingi að brjóta siðareglur sínar.

 

5.    Holdsveiki.  Læknar eru hvattir til að leiða baráttuna gegn fordómum og misrétti gegn holdsveikum og fjölskyldum þeirra. Fundurinn styður alþjólegt ákall um að útrýma misskilningi um holdsveiki, sem er vægt smitandi smitsjúkdómur og sem smitast ekki með tilfallandi samskiptum. Í ákallinu kemur fram að það séu engar læknisfræðilegar ástæður sem réttlæta einangrun holdsveikra. Aukin þekking getur eytt þessum fordómum og með því myndu fleiri sækja sér meðferðar.

 

6.    Endurskoðun Helsinkisáttmálans. Enn voru rædd vandamál sem tengjast lyfleysum í rannsóknum. Fundurinn ákvað að hefja allsherjarendurskoðun á Helsinkisáttmálanum.

 

7.    Berklar í fangelsum. Gefin var út aðvörun um fjölgun berklatilfella í fangelsum og fjölgun tilvika berkla, sem lyf virka ekki á. Áréttað var á fundinum að fangar eigi sama rétt og aðrir til heilbrigðisþjónustu og því þurfi að tryggja að aðstæður í fangelsum stuðli ekki að útbreiðslu sjúkdóma.
Fundurinn samþykkti einnig ályktun þar sem þess er krafist að endurupptaka réttarhalda í Bahrain yfir 20 læknum, hjúkrunarfræðingum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum verði sanngjörn og að þeim verði leyfð vörn með aðstoð lögmanna. Þessir heilbrigðisstarfsmenn voru nýlega dæmdir í 5 – 15 ára fangelsi fyrir að meðhöndla sjúklinga úr hópi uppreisnarmanna.

 

Á fundinum tók Brasilíumaðurinn Jose Gomes do Amaral við sem forseti WMA 2011-2012. Bandaríkjamaðurinn Cecil B. Wilson var kosinn forseti fyrir tímabilið 2012-2013.


 

Samþykktar voru umsóknir frá læknafélögum Trinidad og Tobago, Tanzaníu og Uzbekistan um aðild að WMA.

 

Meðan á fundinum stóð var haldinn stofnfundur alheimssamtaka unglækna. Unglæknar frá Chile, S-Kóreu, Brasilíu, Kanada, Þýskalandi, Úrúgvæ, Ástralíu og Nýja Sjálandi sóttu fundinn.

 

(Þýtt úr fréttatilkynningu frá WMA dags. 17.okt. 2011)




Leita