Fréttatilkynning frá WMA

27.10 2011

Fréttatilkynning frá WMA

Alþjóðafélag lækna (WMA) kallar eftir því að sýrlenska ríkisstjórnin hætti ofsóknum gegn læknum. Ákall WMA kemur í kjölfar skýrslu Amnesti International frá því þriðjudaginn 25. október sl. þar sem fram kom að læknar í Sýrlandi væru af ríkisstjórninni notaðir sem þvingunartæki (e. instrument of repression). Miðvikudaginn 26. október sagði WMA það ólíðandi að læknar í Sýrlandi væru settir í þá stöðu að velja milli þess að hlýða ríkisstjórninni eða setja sjúklinga sína í forgang.

 


Dr. Mukesh Haikerwal formaður stjórnar WMA hvatti sýrlensku ríkisstjórnina til að gefa heilbrigðisstarfsmönnum þau fyrirmæli að meðhöndla alla sjúklinga án tillits til trúarlegra eða stjórnmálalegra viðhorfa. Sérhvern lækni, sem hafnaði því að meðhöndla sjúklinga eða yrði uppvís af því að skaða sjúklinga sína, ætti að rannsaka.

 


Skýrsla Amnesti International er enn eitt dæmið um það að heilbrigðisstarfsmönnum er misbeitt í stríðsátökum eða óeirðum. WMA telur að ríkisstjórnir verða að tryggja að læknum sé ætíð gert kleift að sinna siðferðislegri skyldu sinni gagnvart veikum og slösuðum. Í því felst að tryggja verður læknum aðgang að sjúklingum, heilbrigðisstofnunum og tækjum og að þeir fái nauðsynlega vernd til að sinna starfsskyldum sínum.

 

Sjá nánar á heimasíðu WMA

 



Fréttatilkynning frá WMA 26. október 2011




Leita