Á aðalfundi Læknafélags Íslands sem haldinn var dagana 20. og 21. október sl. var Þorbjörn Jónsson sérfræðingur í ónæmisfræði kjörinn formaður til næstu tveggja ára, en Birna Jónsdóttir röntgenlæknir, sem verið hefur formaður félagsins síðustu 4 ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Fjölmargar ályktanir voru samþykktar á fundinum. Þar er m.a. lýst yfir stuðningi við að byggður verði nýr sameinaður Landspítali á einum stað, skorað er á stjórnvöld að skilgreina hvaða heilbrigðisþjónusta falli undir sjúkratryggingahugtak almannatrygginga og skorað er á stjórnvöld að gera íslenskt heilbrigðiskerfi á ný að fýsilegum starfsvettvangi fyrir lækna. Þá samþykkti fundurinn tvær ályktanir um tóbaksvarnir. Sjá frétt annars staðar á síðunni.
Á aðalfundinum hélt Siðfræðiráð LÍ málþing um siðfræði erfðarannsókna. Fyrirlesarar voru Eva Nilsson Bågenholm fyrrv. formaður sænska læknafélagsins, Magnús Karl Magnússon prófessor í lyfjafræði við læknadeild HÍ og Vilhjálmur Árnason prófessor í heimspeki við sagnfræði- og heimspekideild HÍ.
Nýkjörna stjórn félagsins skipa (frá vinstri): Þórey Steinarsdóttir, Árdís Ármannsdóttir, Steinn Jónsson, Þorbjörn Jónsson formaður, Orri Þór Ormarsson, Salome Arnardóttir, Magnús Baldvinsson féhirðir, Valgerður Rúnarsdóttir varaformaður og Anna Kr. Jóhannsdóttir ritari (sem vantar á myndina).
Á efri mynd óskar Birna Jónsdóttir fráfarandi formaður Þorbirni Jónssyni til hamingju með kjörið.
Myndir: Læknablaðið